Setrið

A 103 - Setrið

 skólanum er boðið er upp á aðstoð við heimanám. Setrið er til staðar í stofu A103 og eru auk kennara eldri nemendur að aðstoða við námið. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þessa aðstoð.

Setrið er opið allan daginn sem lesstofa en námsaðstoð er veitt í tímunum sem merktir eru sérstaklega. 
Í aðstoðartímunum eru kennarar og nemendur til aðstoðar. Ekki þarf að panta tíma í námsaðstoð. Bara mæta á staðinn.

Umsjónarmaður Seturs er: Kristján Þór Sverrisson

Setrið - Námsaðstoð

  • Allir nemendur eiga rétt á aðstoð við nám sitt.
  • Þeir sem vilja vinna heimavinnu – án þess að þurfa sérstaka aðstoð – eru líka velkomnir í Setrið.
  • Mikilvægt er að leita aðstoðar áður en í óefni er komið.



(Síðast uppfært 06.02.2024)