Prentun úr fartölvum

Notendur með eigin fartölvu, hvort sem það er PC eða Mac, geta sent verk í prentun með því að fara inn á vefsíðu prentforritsins MyQ sem notað er í skólanum.
Farðu inn á eftirfarandi slóð: http://frigg.fa.is:8080
Sláðu inn FA notendanafnið þitt og lykilorð.

Mynd0

Eftirfarandi mynd kemur upp þegar inn á heimasíðuna er komið. Veldu Print File  valkostinn neðarlega á myndinni.

Veldu Browse… hnappinn og sæktu á tölvuna þína það verk sem á að prenta. Taktu eftir að það er hægt að prenta PDF skjöl, txt skjöl, jpeg, jpe, jfif, jif myndir en ekki skjöl sem unnin eru í Office forritum eins og Word, Excel eða PowerPoint. Breyta þarf Office skjölum yfir á PDF form ef á að prenta þau út.

Hakað er við „Duplex“ til að prenta báðu megin, fjöldi eintaka er skrifað í reitinn „Copies“ og ef einungis á að prenta í svart hvítu þá er hakað við „Monocrome“.

Mynd2Þegar þú hefur sótt verkið á tölvuna þína sem þú ætlar að prenta og haka í þá reiti sem við á staðfestirðu með því að velja hnappinn OK.


(Síðast uppfært 31.1.2018)