4.5.4. Náttúrufræðibraut

Náttúrufræðibraut Fjölbrautaskólans við Ármúla er ætlað að veita nemendum breiða og almenna menntun auk þess að búa þá undir nám á háskólastigi. Einkum er lögð áhersla á að undirbúa nemendur fyrir nám í heilbrigðisgreinum, náttúruvísindum og raun- og tæknigreinum.

Nám á náttúrufræðibraut er alls 200 feiningar. Það samanstendur af kjarna (86 fe) sem er sameiginlegur öllum bóknámsbrautum, þriðja tungumáli (15 fe), föstum brautarkjarna (50 fe) sem inniheldur stærðfræði og raungreinar og loks vali (49 fe) sem nemendur velja í samræmi við áhuga og lokamarkmið. Til að útskrifast þarf nemandi að ljúka að lágmarki 40 feiningum á þriðja þrepi, en hyggi hann á framhaldsnám sem byggir á stúdentsprófi náttúrfræðibrautar er ráðlegt að ljúka a.m.k. 15-20 feiningum til viðbótar á þriðja þrepi í sérgreinum brautarinnar.

Nánari upplýsingar og brautarlýsing eru á vefsíðu náttúrufræðibrautar.



(Síðast uppfært 22.1.2016)