Verknám

Verknám í þremur hjúkrunaráföngum, VINN2LS08, VINN3GH08 og VINN3ÖH08 fer fram á heilbrigðisstofnunum undir umsjón hjúkrunarkennara og leiðbeinanda sem er sjúkraliði.

Í hverjum verknámsáfanga eru nemendur í verknámi samfellt í 3 vikur eða 15 vaktir í hverjum áfanga. Verknám í VINN áföngum er ólaunað.

VINN2LS08 er verknámsáfangi á lyflækninga- eða skurðlækningadeildum á Landspítala eða öðrum bráðasjúkrahúsum. Verknám í þessum áfanga fer fram frá miðjum maí til byrjun júní í alls 3 vikur.

Verknám í VINN3GH08 og VINN3ÖH08 fer fram í ársbyrjun frá byrjun janúar fram í miðjan febrúar og varir í 6 vikur.

VINN3GH08 er verknám á sérdeildum eins og geðdeildum, endurhæfingardeildum, gjörgæsludeildum eða barnadeildum.

VINNÖH08 er verknám á öldrunarlækningadeild eða hjúkrunarheimilum.

Nemandi verður að hafa lokið hjúkrunaráföngunum:  HJÚK1AG05, HJVG1VG05, HJÚK2HM05, HJÚK2TV05, VINN2LS08 til þess að hefja verknám í VINN3GH08 og VINN3ÖH08

Í verknámi þurfa nemendur að tileinka sér og sýna fram á faglega hæfni í verkum sínum og færni í samskiptum við skjólstæðinga og samstarfsfólk. Nemendur halda ferilbók yfir verknámið, sem námsmat er að hluta til byggt á.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla hefur gert samning við Landspítala háskólasjúkrahús um verknámspláss og tímabil verknáms. Áður en verknám hefst þurfa nemendur að fara í lifrarbólgubólusetningu B, berklapróf og láta endurtaka bólusetningar vegna barnasjúkdóma.


(Síðast uppfært 22.2.2016)