Nám og skóli

Þegar þú veist hvaða starf eða starfssvið þú vilt stefna á er auðveldara að hefja leit að réttri námsbraut og skóla. Í upphafi skyldi endinn skoða er máltæki sem á vel við hér. Ef starfið krefst háskólamenntunnar er rétt að byrja á að kynna sér námið í háskólanum og inntökuskilyrði þar. Þá kemstu að því hvort ákveðinnar námsbrautar er krafist úr framhaldsskóla eða ákveðins fjölda eininga í stærðfræði, raungreinum, félagsgreinum, tungumálum, listum eða öðru. Ef starfið krefst náms á framhaldsskólastigi getur verið að fyrst þurfi að ljúka ákveðnum fjölda eininga í almennum greinum. Þær einingar er hægt að taka í flestum framhaldsskólum og þá t.d. hægt að byrja í skóla nálægt heimilinu.

Þegar ljóst er hvaða námsbraut í framhaldsskóla hentar fyrir starfið eða framhaldsnámið geturðu skoðað í hvaða skólum sú braut er í boði og valið um skóla.

Skoðaðu síðuna „Gagnlegar slóðir“ hér á síðu Náms- og starfsráðgjafar en þar finnurðu síður um nám og skóla. T.d. gætirður skoðað nýja vefinn "Næsta skref".

Menntagátt er annar upplýsingabrunnur um skóla og nám en þar er að finna yfirlit yfir alla skóla landsins á öllum skólastigum. Vissir þú að námsbrautir í framhaldsskólum á Íslandi eru um eða yfir 100 talsins?

(Síðast uppfært 10.12.2022)