Áfangi

Fatasaumur 2

  • Áfangaheiti: FATA2SB05
  • Undanfari: FATA1SS05
  • Efnisgjald:

Markmið

Framhaldsáfangi í fatasaum og hönnun. Farið verður dýpra í sniðbreytingar, hönnunarferlið og efnisfræðina. Gerðar verða flóknari flíkur eins og kjólar, skyrtur og vesti og unnið með vasa og rennilásaísetningar.
Áfanginn snýst um að læra nýjar aðferðir og auka vandvirkni auk þess sem lögð verður áhersla á endurnýtingu textils.

Námsmat

Áfanginn er próflaus en verkefni og ástundun mikilvæg.