Áfangi
Tónsmiðja 1
- Áfangaheiti: TÓNS1TS03
- Undanfari: Auk brennandi áhuga á tónlist er nauðsynlegt er að nemendur hafi einhvern grunn í hljóðfæraleik/söng.
Markmið
Að nemendur fái þjálfun í að spila/syngja saman í hljómsveit, bæði í litlum einingum og stærri. Lögð er áhersla á samleik á fjölbreyttu sviði rytmískrar tónlistar og unnið út frá getu og áhugasviði nemendahópsins.
Námsfyrirkomulag
Í námskeiðinu verður farið í gegnum tónlistarsöguna frá því að rafmagnsgítarinn kom fram á sjónarsviðið og til dagsins í dag. Nemendur fá tækifæri til að vinna að mjög fjölbreyttri tónlist og auka þekkingu sína og hæfni. Haldnir verða hádegistónleikar í skólanum á miðri önn auk stærri tónleika í lok áfanga.
Kennslugögn
Upplýsingar hjá kennara.
Námsmat
Símat þar sem áhersla er lögð ástundun og frammistöðu á tónleikum annarinnar.