Fréttir

Árdagar - niðurtalning hafin

22.2.2017

Nú er ekki nema vika í Árdaga niðurtalningin hafin, spennan eykst með hverjum degi. Sjö dagar í Árdagana og undirbúningur í fullum gangi en nemendur í LOK-hóp hafa mestan veg og vanda að undirbúningi daganna. Árdagarnir verða með sama sniði og í fyrra; skrautleg lið nemenda keppa sín á milli við að leysa ýmsar þrautir sem kennarar og starfsfólk leggja fyrir á ýmsum stöðum í skólanum. Þrautirnar reyna á hyggjuvit, minnisgáfu og snerpu og því eins gott að velja vel í lið sitt.

Nú þegar hafa nokkur lið nemenda skráð sig til leiks, til dæmis Green Goblins, Team Trump, Pinkalicious, Rednecs, Bluejays og fleiri eiga eftir að koma, kannski kennd við fræga íslenska kappa eins og Skarphéðin, Gretti, Gunnar og Geir?DSC_0093