Fréttir

Ekki leifa! Klárið matinn!

18.10.2017

Nú á að finnna út hversu mikil matarsóunin er í skólanum og hvernig má hjálpa til við að draga úr henni. Þessi athugun er unnið í samstarfi við Krúsku sem rekur mötuneyti skólans og veit því hve margir matarskammtar eru seldir daglega. Nemendur sem standa að verkefninu munu sjá um að vigta það sem fer í lífrænu fötuna eftir morgunmat og síðan aftur eftir hádegismat til að komast að raun um hversu miklu magni er hent miðað við selda matarskammta. Mælingar fara fram nú í vikunni frá mánudegi 16. október til fimmtudags 19. október. Síðan er ætlunin að vigta aftur í seinustu vikunni í október til að sjá  hvort og hversu mikil áhrif þetta átak hefur haft á matarsóun. Markmið rannsóknarinnar er að koma í veg fyrir matarsóun og jafnframt vinna að því að Krúska minnki skammtana og geri þá einstaklingsmiðaðri. Umfram allt er þó meiningin með þessu að vekja almennt bæði nemendur og starfsfólk til umhugsunar um matarsóun.