Fréttir

Nemar í viðskiptalögfræði FÁ heimsóttu Fangelsismálastofnun

11.10.2023

 

Nemendur í viðskiptalögfræði skólans fóru í heimsókn í Fangelsismálastofnun sem sér um fullnustu refsinga og önnur verkefni í samræmi við ákvæði laga um fullnustu refsingar. Erla Kristín Ásgeirsdóttir lögfræðingur og staðgengill forstjóra tók á móti hópnum og hélt fyrirlestur um hlutverk, starfsemi og málefnalega hugmyndafræði stofnunarinnar.

Áherslur Fangelsismálastofnunar snúast umfram allt um betrun sem skilar brotamönnum í ríkari mæli aftur út í samfélagið sem friðsömum og gagnlegum borgurum.

Aðspurðir um ferðina nefndu nemendur að vettvangsferðin hefði opnað augu þeirra gagnvart mikilvægi betrunar og samkenndar í málaflokki brotamanna og töldu mikilvægt að falla ekki í gryfju múgæsings og refsigirni