Fréttir

Radíó FÁ

20.2.2017

Dagana 21.-28.febrúar verður ÚTVARPAÐ frá FÁ frá níu á morgnana til níu á kvöldin á FM106,1. Dagskráin er ekki komin á fast en ef einhverjir vilja nýta sér þetta í kennslu eða til þess að predika sínar skoðanir til fjöldans, þá er þetta kærkominn vettvangur. Kverúlantar, sérvitringar og gáfnaljós sérstaklega velkomin. Það eru nemendur í fjölmiðlafræði og NFFÁ sem standa fyrir þessari útvarpsviku.