Grunnnám heilbrigðisgreina

Uppbygging

Grh

Grunnnám heilbrigðisgreina er 94 einingar. Námið er ætlað þeim sem hafa hug á starfsmenntun á heilbrigðissviði, en hafa ekki gert upp hug sinn hvaða braut skuli velja eða uppfylla ekki inntökuskilyrði brautar.

Eftir grunnnám heilbrigðisgreina má einnig bæta við og ljúka stúdentsprófi af bóknámsbraut. Grunnnám heilbrigðisgreina fléttað við náttúrufræðibraut er góður undirbúningur fyrir háskólanám á heilbrigðissviði, t.d. læknisfræði, hjúkrunarfræði eða sjúkraþjálfun. Grunnnám heilbrigðisgreina tekur þrjár annir. Sjá nánar á  Námskrá.is og með því að smella þar á áfangaheiti fæst lýsing á innhaldi viðkomandi áfanga.

Smelltu á krækjurnar hér fyrir neðan til að opna lýsingu á grunnnámi heilbrigðisgreina og dæmi um hvernig hægt er bæta við þann grunn.

  Grunnnám heilbrigðisgreina
Excel / PDF
  Náttúrufræðibraut í framhaldi af grunnnámi
PDF
Sjúkraliðabraut í framhaldi af grunnámi
PDF


(Síðast uppfært 24.2.2021)