- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Stoðþjónusta
- Þjónusta við nemendur
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
Viðskipta- og hagfræðibraut er ætlað að veita nemendum breiða og almenna menntun auk þess að búa þá undir nám á háskólastigi. Einkum er lögð áhersla á að undirbúa nemendur fyrir nám í viðskiptagreinum, hagfræði og öðrum félagsgreinum.
Til að hefja nám á viðskipta- og hagfræðibraut er nauðsynlegt að nemandi hafi staðist grunnskólapróf í kjarnagreinum (íslensku, ensku og stærðfræði) eða lokið fornámi í þessum áföngum.
Nám á viðskipta- og hagfræðibraut er alls 200 einingar. Það samanstendur af kjarna (91 ein) sem er sameiginlegur öllum bóknámsbrautum, þriðja tungumáli (15 ein), föstum brautarkjarna (60 ein) sem inniheldur viðskipta- og hagfræðigreinar og síðan vali (34 ein) sem nemendur velja í samræmi við áhuga og lokamarkmið. Til að útskrifast þarf nemandi að ljúka að lágmarki 40 einingum á þriðja þrepi en stefni hann á framhaldsnám sem byggir á stúdentsprófi viðskipta- og hagfræðibrautar er ráðlegt að ljúka a.m.k. 15-20 einingum til viðbótar á þriðja þrepi í sérgreinum brautarinnar.
Nemandi sem staðist hefur grunnskólapróf í kjarnagreinum getur lokið námi á brautinni á þremur árum. Til þess þarf hann að ljúka 33-35 einingum á hverri önn. Hann þarf einnig að huga vel að þrepaskiptingu í öllum greinum og átta sig á að sumir áfangar eru ekki í boði á hverri önn.
Nákvæm brautarlýsing er á Námskrá.is og með því að smella þar á áfangaheiti fæst lýsing á innhaldi viðkomandi áfanga.
Viðskipta- og hagfræðibraut (pdf)
Viðskipta- og hagfræðibraut (excel)