Umsjónarkerfi

Umsjónakerfi

Allir nemendur hafa umsjónarkennara sem leiðbeinir þeim, fylgist með námsástundun þeirra, mætingum og árangri.

Nýnemar fá umsjónarkennara fyrsta árið sem sinna sérstaklega nemendum á 1. ári í framhaldsskóla. Umsjónakennari boðar nemandann og forráðamenn til viðtals við upphaf skólagöngunnar. Allir nýnemar hitta svo umsjónakennarann sinn með sínum umsjónarbekk einu sinni í viku í sérstökum umsjónartíma á fyrstu önninni. Sami umsjónabekkur er einnig saman í lífsleikni þrisvar sinnum í viku fyrsta árið.

Eftirlit umsjónarkennara með mætingum

  • Umsjónarkennari ræðir við umsjónarnemanda sinn ef hann er kominn með undir 80% skólasókn. Einnig hringir hann eða sendir tölvupóst til foreldra nemandans ef hann er yngri en 18 ára.
  • Lagist mæting nemandans ekki þá vísar umsjónarkennari málinu til umsjónaraðila nemendaþjónustu eða skólastjórnenda.

Eftirlit umsjónarkennara með námsárangri

  • Umsjónarkennari nýnema fundar í upphafi annar með nemandanum og foreldrum. Hægt verður að fylla út einstaklingsáætlun á þeim fundi.
  • Umsjónarkennari fylgist með að umsjónarnemandi hans:
    • taki ekki fleiri einingar en hann ræður við (sjá reglur)
    • fái stuðning í námsgrein ef hann situr í 3. sinn í áfanga. Sæki nemandinn ekki stuðningstímana verður hann tekinn úr áfanganum.
    • byrji tímanlega á námsgrein ef ljúka þarf mörgum einingum í henni (t.d. 9 einingum eða fleiri).
  • Telji umsjónarkennari að skoða þurfi feril nemanda betur, vísar hann málinu til „nemendaverndarráðs“/ stoðteymis / náms- og starfsráðgjafa.
Síðast uppfært: 28. ágúst 2025