Fjarnámsstefna FÁ

Fyrst var boðið upp á fjarnám í Fjölbrautaskólanum við Ármúla sumarið 2002 og síðan þá hefur það verið óslitinn þáttur í skólastarfinu. Nemendur í fjarnámi eru flestar annir þó nokkuð fleiri en dagskólanemendur en stunda nám í færri áföngum hverju sinni. Stöðugt er unnið að því að bæta fjarnámið, m.a. með því að nýta alla þá möguleika sem upplýsingatæknin býður upp á.


Meginmarkmið fjarnáms í Fjölbrautaskólanum við Ármúla eru:

  • að gefa sem flestum kost á að stunda framhaldsskólanám óháð stað og stund
  • að brúa bilið hjá þeim sem kjósa að taka upp þráðinn á ný eftir hlé frá námi og gefa þeim nýtt tækifæri
  • að gefa nemendum kost á sveigjanleika í námi og að stytta sér leið að lokaprófi
  • að sem flestar leiðir sem standa til boða í staðnámi séu einnig í boði í fjarnámi
  • að unnt verði að ljúka stúdentsprófi af öllum bóknámsbrautum í fjarnámi
  • að unnt sé að ljúka í fjarnámi þeim bóklegu greinum á brautum Heilbrigðisskólans sem til þess eru fallnar
Síðast uppfært: 28. maí 2025