Umhverfismál

Menntakerfið er hornsteinn hvers samfélags. Ungir hugir eru þar mótaðir til framtíðar og kapp lagt á að miðla til nemenda þeim gildum sem samfélagið vill að séu ríkjandi á hverjum tíma. Því er mikilvægt að skólar landsins sinni umhverfismálum af alúð og einlægni. Fjölbrautaskólinn við Ármúla tekur það hlutverk sitt alvarlega og vill sýna nemendum og öðrum sem að skólastarfinu koma, gott fordæmi við rekstur og stjórnun skólans. Skólinn mun hafa umhverfissjónarmið og verndun náttúrunnar að leiðarljósi jafnt í daglegum athöfnum og í stefnumótun til framtíðar. Vinna innan skólans tekur tillit til sjálfbærrar þróunar þegar því verður við komið.

Grænfáninn

Fjölbrautaskólinn við Ármúla var fyrsti framhaldsskólinn á Íslandi til að flagga grænfánanum. Skólinn hefur tekið öflugan þátt í skólum á grænni grein frá árinu 2006 og flaggaði sínum tuttugasta fána árið 2025. Það er markmið skólans að vera áfram í fararbroddi á sviði umhverfismála og taka ný skref fram á við á hverju ári. Áhersla er lögð á að rekstur skólans og daglegt líf innan hans sé með vistvænum hætti. Að auki er markvisst unnið með að styrkja gildismat og viðhorf nemenda og starfsfólks til verndunar náttúrunnar og umhverfisvæns lífsstíls.

 

Sjálfbærniteymi

Innan skólans starfar sjálfbærniteymi sem samanstendur af stjórnendum, kennurum, starfsfólki í stoðþjónustu skólans og nemendum. Sjálfbærniteymið fundar reglulega og setur sér árleg markið um framvindu umhverfismála í skólanum. Helsta markmið sjálfbærniteymisins er að fylgja sjálfbærnistefnu skólans og auka meðvitund umhverfismála í skólanum öllum.

Umhverfisráð

Umhverfisráð skólans er skipað af nemendum. Umhverfisráð heldur umhverfisdaga í skólanum á hverri önn og leiðir skólann áfram í grænfánaverkefninu. Umhverfisráð ákveður markmið og þema í umhverfisstarfi skólans fyrir tveggja ára tímabil í senn.

Umhverfisdagar

Umhverfisdagar eru haldnir í skólanum tvisvar sinnum á ári, á vorönn og haustönn. Á umhverfisdögum er umhverfismálunum lyft sérstaklega hátt upp í skólahaldi og allir nemendur, kennarar og annað starfsfólk tekur þátt í þeim með einum eða öðrum hætti. Umhverfisdagar eru skipulagðir af umhverfisráði nemenda, með aðkomu sjálfbærniteymis skólans og umhverfisfræðiáfangans.

Græn skref í ríkisrekstri

Skólinn hefur lokið öllum fimm grænu skrefunum í ríkisrekstri og tekur virkan þátt í verkefninu, meðal annars með því að mæta á alla þá fræðslu sem umhverfisstofnun býður uppá og með því að fara reglulega yfir aðgerðirnar innan skrefanna fimm.

Umhverfisfulltrúi

Við skólann starfar umhverfisfulltrúi í 50% hlutfalli. Umhverfisfulltrúi sinnir fjölmörgum verkefnum í skólanum á sviði umhverfismála, m.a. heldur hann utan um umhverfisráð og sjálfbærniteymi ásamt umsjón með Grænu skrefunum í ríkisrekstri. Umhverfisfulltrúi hefur frumkvæði á því að sækja um og fylgja eftir hvers kyns styrkjum á sviði umhverfismála og er í forsvari gagnvart samtökum og stofnunum sem vinna að málaflokknum.

Umhverfisfréttafólk

Skólinn tekur árlega þátt í verkefninu Umhverfisfréttafólk á vegum Landverndar. Verkefnið skapar ungmennum vettvang til þess að kynna sér umhverfismál og koma upplýsingum á framfæri á skapandi hátt. Nemendum í verkefninu gefst tækifæri til þess að taka þátt í árlegri keppni. Fyrstu þrjú sætin fá verðlaun og eiga möguleika á að taka þátt í alþjóðlegri samkeppni á vegum verkefnisins alþjóðlega (YRE – Young Reporters for The Environment).

 

Samgöngustefna FÁ

Unnið er markvisst að því að auka vitund nemenda og starfsmanna um þau áhrif sem samgöngumáti þeirra hefur á umhverfið og heilsuna. Skólinn veitir þeim starfsmönnum sem tileinka sér umhverfisvænan ferðamáta til og frá vinnu samgöngustyrk. Öll eru hvött til þess að ferðast til og frá skólanum með vistvænum leiðum og reglulega er í boði fræðsla um umhverfisvæna samgöngumáta.

Loftslagsstefna

Fjölbrautaskólinn við Ármúla hefur að markmiði að vera í fararbroddi á sviði umhverfismála og leggur áherslu á að bæði daglegt líf innan skólans, og rekstur hans, verði með vistvænum hætti. Þáttur í þessu markmiði skólans er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda en loftslagsbreytingar eru raunveruleg ógn sem mannkynið og komandi kynslóðir standa frammi fyrir. Fjölbrautaskólinn við Ármúla telur mikilvægt að stofnanir leggi sitt af mörkum til þess að sporna við þessari þróun og að markmiðum Parísarsamningsins sé náð.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla er handhafi Grænfánans og fylgir Grænum skrefum í ríkisrekstri og vinnur þar með markvisst að því draga úr umhverfisáhrifum stofnunarinnar og taka framförum á þessu sviði. Stór þáttur í því er að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda í starfi stofnunarinnar.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla mun draga úr losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) á ársverk um 40% fyrir árið 2030 miðað við árið 2019 og kolefnisjafna þá losun sem eftir stendur frá árinu 2021. Skólinn einsetur sér að reyna að takmarka vistspor stofnunarinnar eins mikið og unnt er miðað við þá starfsemi sem fram fer í skólanum. Loftslagsstefna Fjölbrautaskólans við Ármúla nær til innkaupa, orkunotkunar, úrgangs sem fellur til við skólastarfið, samgangna starfsfólks og nemenda skólans í ferðum tengdu skólastarfi og umhverfisfræðslu. Hún nær til allrar starfsemi sem fer fram innan veggja skólans, bygginga og framkvæmda.
Loftslagsstefna skólans verður rýnd á hverju ári í þeim tilgangi að uppfæra markmið stefnunnar og tryggja að þau séu metnaðarfull og hægt sé að fylgja þeim eftir. Umhverfisfulltrúar skólans, í samstarfi við Sjálfbærninefnd skólans, taka það verkefni að sér en í Sjálfbærninefndinni eru stjórnendur, gæðastjóri, umhverfisfulltrúar, fulltrúar kennara, fulltrúar nemenda, starfsmaður af þjónustusviði og umsjónarmaður fasteigna.
Árið 2021 byrjaði Fjölbrautaskólinn við Ármúla að halda grænt bókhald. Öll stefnumótun, endurskoðun og eftirfylgni loftslagsstefnunnar verður gerð í samræmi við niðurstöður græna bókhaldsins í framtíðinni.
Síðast uppfært: 24. apríl 2026

Fréttir af umhverfismálum

20.04.2026

Heimsókn til UN Women

Fulltrúar umhverfisráðs og nemendaráðs fóru í heimsókn til UN Women í dag og fræddust um starfsemina. Nemendur áttu innihaldsríkar samræður við starfsfólk UN Women og ræddu m.a. samfélagsmiðla, algrímið, hinsegin málefni og afhverju „woke“ virðist ekki lengur vera í tísku. Öll voru sammála um mikilvægi þess að mannréttindi fólks séu virt og að við þorum að tala máli þeirra sem eiga undir högg að sækja í samfélaginu. Fyrr á önninni styrktu nemendur skólans starfsemi UN Women með rósasölu sem fór fram á Valentínusardaginn. UN Women vinnur að jafnrétti og valdeflingu kvenna um allan heim. Helstu áskoranir starfseminnar í dag eru bakslag gegn mannréttindum, breytt heimsmynd og aukin átök. Staða kvenna í heiminum Á hverri mínútu eru 23 barnungar stúlkur þvingaðar í hjónaband Á heimsvísu eru konur aðeins með 64% þeirra lagalegu réttinda sem karlmenn búa við 45.000 konur eru myrtar árlega af maka eða nákomnum ættingja Aðeins 27% þingfólks í heiminum eru konur Hjá UN Women er unnið gott og gríðarlega mikilvægt starf og hafa samtökin staðið fyrir vitundavakningu og herferðum. Mörg kannast t.d. við FO - Fokk ofbeldi húfurnar sem eru árlega í sölu hjá samtökunum. Í ár rennur ágóðinn til verkefnis UN Women í Palestínu. FO Húfan 2026 - UN Women Ísland | unwomen.is
16.04.2026

Umhverfisdagur á afmæli Vigdísar Finnbogadóttur 

Umhverfisdagur skólans var haldinn í gær, miðvikudag þann 15. apríl á 96 ára afmælisdegi Vigdísar Finnbogadóttur. Það var sérlega viðeigandi tímasetning, því Vigdís lagði mikla áherslu á umhverfis og náttúruvernd í sinni forsetatíð og hefur haldið því áfram allar götur síðan.
15.04.2026

Hvernig komum við í veg fyrir útrýmingu dýra? - frétt frá nemenda í umhverfisfræði

Útrýmingarhætta þýðir að lífvera eigi í hættu á að deyja út. Þetta er ekki aðeins notað fyrir dýr heldur líka plöntur og sveppi. Til eru flokkar yfir hversu líklegt er að lífvera deyi út sem koma frá IUCN ((International Union for Conservation of Nature). Helstu flokkarnir eru CR (í bráðri útrýmingarhættu), VU (í viðkvæmri stöðu) og EN (í útrýmingarhættu). Rannsóknir frá IUCN sýna að eitt af fjórum landspendýrum er í útrýmingarhættu og eitt af þremur sjávarspendýrum Það geta verið margar ástæður fyrir því að lífverur deyi út en aðal orsakirnar eru vegna loftslagsbreytinga eða af völdum manna. Manneskjur rífa niður heimili dýra, drepa þau fyrir minjagripi og við erum að einhverju leiti ábyrg fyrir loftslagsbreytingum. Á Íslandi eru margar fuglategundir í útrýmingarhættu. Lundinn er í mikilli útrýmingarhættu og flokkast sem CR. Fálkinn er líka í mikilli útrýmingu og flokkast sem EN. Það eru nokkur spendýr sem eru í útrýmingarhættu hér á landi og nokkur sem eru nú þegar dáin út. Bæði rostungurinn og sandlægjan eru útdauð á Íslandi og sléttbakurinn er í bráðri útrýmingarhættu og hefur verið það í mörg ár. Geirfuglinn er örugglega þekktasta dæmið hér á landi um dýr sem hefur dáið út, ekki bara á Íslandi heldur í heiminum öllum. Hann var stærstur svartfugla og var um 70 cm á hæð. Geirfuglinn var víða um Norðvestur-Evrópu og við Nýfundnaland. Á Íslandi er talið að stofn geirfuglsins hafi alltaf verið frekar fámennur og var hann aðeins nokkur hundruð til þúsund para. Mikil ofveiði var á geirfuglinum þar sem hann var ófleygur og hægur. Menn króuðu marga fugla saman í rétti, rotuðu þá eða snéru úr hálslið. Einn geirfugl gaf aðeins 1,5 kg af kjöti ásamt smá fitu og lýsi. Síðustu geirfuglarnir sem til voru í heiminum voru drepnir í Eldey á Íslandi árið 1844. Er þetta frægasta dæmi um útrýmingu dýrategundar hér á landi og er oft notað sem dæmi um áhrif ofveiði. En í dag eru margar leiðir hér á landi til að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Það eru til lög sem banna nánast alla fuglaveiði algjörlega eða á ákveðnum árstíðum, almennt er bannað að veiða villta fugla nema að ákveðin undartekning sé til. Einnig eru búsvæði fugla vernduð og vísindamenn gera sitt besta til að grípa inn eins fljótt og mögulega þegar stofn ákveðinna tegunda fer að minnka. Steinunn Birna Garðarsdóttir
15.04.2026

Flokkun matarleifa - frétt frá nemendum í umhverfisfræði

Af hverju er mikilvægt að flokka matarleifar? Flokkun matarleifa er stórt skref í átt að minnka losun gróðurhúsategunda. Gerðar voru mælingar á matarsóun á Íslandi frá 2019, og benda þær til þess að hver einstaklingur hendi í kringum 90 kg af mat árlega og mest af því er ekki flokkað. Matarleifar eru dýrmæt auðlind sem hægt er að endurvinna. Þegar matarleifar safnast saman við heimili kemur úr þeim metangas og molta eða jarðvegsbætur. Metangasið getur verið nýtt sem bifreiðaeldsneyti og moltan nýtist til landgræðslu. Talið er að með þessum árangri takist að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. GAJA (Gas- og jarðgerðarstöð) gerir ráð fyrir að magnið af matarleifum sem þau taka á móti á Suðurvesturhorninu jafngildi því að taka 10.000 fólksbíla sem keyra á jarðefniselds neyti af götunum. Magnið væri 24.000 tonn af matarleifum, sem kemur í veg fyrir losun á 20.000 tonnum af koltvísýringsígildi. Árið 2022 losaði urðunarstaður SORPU á Álfsnesi t.d. 94.000 tonnum af koltvísýringi í. Það er jafn mikið og 50.000 bílar sem keyra á jarðefniseldsneyti. Þessi árangur sýnir fólki og fyrirtækjum að það er mjög mikilvægt að gera enn betur þegar það kemur að því að flokka matarleifar. Stefán Máni Unnarsson Gabríel Bjarkason
06.11.2025

Umhverfisdagur í FÁ í dag – Af hverju skiptir þetta máli?

Við búum í heimi þar sem loftslagsbreytingar, mengun og sóun náttúruauðlinda eru ein stærsta áskorun samtímans. Með því að fræðast og sýna ábyrgð, jafnvel með litlum skrefum, getum við haft raunveruleg áhrif. Að slökkva ljós, velja vistvæna ferðamáta, eða huga að bættri endurvinnslu eru einföld dæmi um aðgerðir sem skipta máli þegar margir taka þátt. En af hverju skiptir þetta raunverulega máli? Umhverfisdagurinn er tækifæri til að staldra við og hugsa um hvernig daglegar venjur okkar hafa áhrif – hvort sem það er í skólanum, heima eða í samfélaginu. Hvernig við neytum, flokkum, ferðast og notum orku hefur bein áhrif á náttúruna og loftslagið. Erik Steinn Halldórsson Hasanain Saad Abdulhussein Alzuhairi Iustin Andrei Calin
14.10.2025

Hvers vegna þurfum við að endurvinna gamla síma?

Í dag er alþjóðlegi rafrusladagurinn. FÁ tekur virkan þátt í deginum. Rafrusl eru öll raftæki, stór og smá; sem ekki eru lengur í notkun. Mikilvægt er að við komum þeim í réttan endurvinnslufarveg.
06.10.2025

Draumur um jökul

Nemendur úr FÁ og MS fóru í síðustu viku á Sólheimajökul ásamt leiðsögumanni frá Asgard Beyond. Ferðin var hluti af verkefninu Draumur um jökul, sem er samstarfsverkefni skólanna og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, tileinkað alþjóðlegu ári jökla.
17.09.2025

Fögnum íslenskri náttúru í dag og alla daga

Dagur íslenskrar náttúru var haldinn hátíðlega við skólann þann 16. september. Fjörug dagskrá var við skólann að tilefninu. Umhverfisráð nemenda stóð fyrir ratleik fyrir nemendur þar sem þau fundu Grænfánann, rúlluðu sér niður brekkuna á skólalóðinni og skoðuðu plöntur í kringum skólann. Sjálfbærninefnd skólans (starfsfólk og stjórnendur) stóð vaktina við flokkunartunnur og aðstoðaði nemendur í vafa við flokkun. Allar deildir skólans gróðursettu íslenskar plöntur á svæði á skólalóðinni sem síðar meir verður útikennslustofa. Nú á hver deild skólans sína plöntu og munu þær fylgjast vel með henni. Plönturnar sem urðu fyrir valinu í ár eru Bæjarstaðabirki og Kasmír-reynir. Íslensk lög með umhverfisboðskap voru spiluð bæði í matsal skólans og á kaffistofu starfsfólks. Þátttaka í deginum var til fyrirmyndar og gaman að sjá hvað nemendur tóku virkan þátt í ratleiknum. Dagur íslenskrar náttúru hefur verið haldinn hátíðlegur síðan árið 2011. Tilgangur dagsins er að beina sjónum okkar allra að hinni einstöku náttúru landsins, þeim auðæfum sem í henni felast og mikilvægi þess að vernda hana og varðveita. Dagurinn er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar en hann hefur lengi verið ötull talsmaður náttúruverndar.
23.04.2025

Skundað á Þingvöll

Nemendur í umhverfisfræði, ásamt kennurum, fóru í vettvangsferð á Þingvelli þar sem Torfi Stefán Jónsson, fræðslufulltrúi í þjóðgarðinum og fyrrum sögukennari við FÁ, tók vel á móti okkur að vanda. Nemendurnir hafa undanfarið verið að læra um friðlýst svæði á Íslandi og heimsóknin á Þingvelli var vissulega rúsínan í pylsuendanum á þeirri fræðslu. Það viðraði vel til útivistar og nemendur voru margs vísari eftir ferðina.
11.04.2025

Umhverfiskönnun

Á umhverfisdegi í mars var send út umhverfiskönnun á nemendur. Rúmlega 100 nemendur svöruðu umhverfiskönnuni. Þó við hefðum viljað hafa hærra svarhlutfall þá er ýmislegt áhugavert sem fram kemur í niðurstöðunum.
04.04.2025

Tíunda grænfánanum flaggað

Fjölbrautaskólinn við Ármúla fékk sinn tíunda Grænfána í gær, fimmtudaginn 3. apríl. FÁ var fyrsti framhaldsskólinn til að hljóta Grænfánann árið 2006 og hefur verið öflugt umhverfisstarf í skólanum síðan. Í umhverfisráði nemenda sitja níu nemendur skólans og í sjálfbærninefnd sitja 8 starfsmenn, tveir stjórnendur og tveir nemendur.
19.03.2025

Hvað geta ungmenni gert fyrir jörðina?

Í FÁ er starfandi frábært umhverfisráð sem vinnur að umhverfismálum í skólanum. Þau Matthildur Þóra og Guðmundur Ingi sem eru í umhverfisráði skrifuðu smá frétt sem birtist á visir.is í vikunni: Hvað geta ungmenni gert fyrir jörðina. Við hvetjum ykkur til að lesa þessa flottu frétt.
11.03.2025

Vilja vernda jökla á Íslandi

Nemendur í umhverfisráði skólans fóru í heimsókn í Mannréttindahúsið og kynntust þeirri starfsemi sem þar er. Mannréttindahúsið sameinar fjölbreytt samtök sem berjast fyrir mannréttindum hvert á sínum forsendum. Þar er að finna t.d. KVAN, ÖBÍ réttindasamtök, UN Women á Íslandi og Félag Sameinuðu þjóðanna. Með í ferðinni voru nemendur frá nágrannaskólanum okkar, Menntaskólanum við Sund. Mikið og gott samstarf hefur verið á milli skólanna tveggja í starfi umhverfisráðanna. Tilgangur ferðarinnar var að fræðast um Mannréttindahúsið og eiga gott samtal við Pétur Hjörvar, tengilið UNESCO skólanna á Íslandi á vegum Félags Sameinuðu þjóðanna. Hópurinn ræddi um mikilvægi jökla á Íslandi og sótti um styrk á vegum loftslagssjóðs Reykjavíkurborgar sem styður við vitundavakningu á loftslagsbreytingum meðal ungs fólks. Styrkumsóknin ber heitið „Draumurinn um jökul“ og ef styrkurinn fæst verður farið í jöklaferð með það fyrir augum að taka upp og miðla fræðslumyndbandi um jökla meðal ungmenna á Íslandi.
20.02.2025

A Green Day verkefnið

Á síðasta ári tók Fjölbrautaskólinn við Ármúla þátt í Erasmus verkefninu A Green Day í samstarfi við IES Tegueste frá Tenerife. Verkefnið byggði á samstarfi tveggja skóla þar sem markmiðið var að fræða hvorn annan um ýmis umhverfismál. FÁ hjálpaði IES Tegueste að undirbúa vinnu við umsókn um Grænfánann sem við höfum fengið afhentan í um 20 ár, fyrstir allra framhaldskóla. Í verkefninu fyrir hönd FÁ voru Andri Ingvason, Guðbjörg Eiríksdóttir og Tinna Eiríksdóttir en með þeim voru fimm nemendur sem stunda nám við skólann.
02.12.2024

Vel heppnuð Litlu jól framhaldsskólanna

Litlu jól framhaldsskólanna fóru fram í Fjölbrautaskólanum við Ármúla fimmtudaginn 28. nóvember en viðburðurinn var haldinn af FÁ, Tækniskólanum og MS. Fjölmargir framhaldsskólanemar mættu á Litlu jólin og sló loftslagsvæna kakóið algjörlega í gegn hjá nemendum. Tilgangur viðburðarins var að fræða nemendur um loftslagsmál með skemmtilegum hætti. Hringrásarhagkerfið var allsráðandi á viðburðinum og hver einasta smiðja úthugsuð frá umhverfissjónarmiði. Viðburðurinn gekk afskaplega vel og söfnuðust 37 þúsund krónur til styrktar Barnaheilla.