Val í Innu - leiðbeiningar

Val fyrir vorönn 2027

Opnað verður fyrir val nemenda fyrir vorönn 2027 þann 12. október og mikilvægt er að nemendur klári að velja fyrir föstudaginn 31. október.

Ef nemendur eru í einhverjum vafa hvaða áfanga þeir eiga að velja eru þeir hvattir til þess að hafa samband við umsjónarkennara sinn. Ef nemandi velur ekki fyrir 31. októberá hann á ættu að missa skólavist.

Hafa ber í huga að hámark eininga á 1.þrepi eru 66 og að lágmarki á 35-40 einingar á 3.þrepi á stúdentsbrautum. Miðað skal við að nemendur velji að hámarki 7 áfanga auk íþrótta og 2-3 áfanga í varavali en gott er að velja í samræmi við námsárangur síðustu anna.

Allir áfangar í INNU

Áhugaverðir valáfangar

Leiðbeiningar 

1. Smellið á flipann hægra megin niðri á forsíðunni þar sem stendur „Val“.

2. Þegar inn á síðuna er komið birtist þessi mynd. Ýtið á „+Velja áfanga“. 

3. Eftir að hafa ýtt á „+Velja áfanga“ birtist þessi listi en þetta eru þeir áfangar sem í boði eru á næstu önn. Til þess að velja áfanga þarf einungis að smella þann áfanga t.d. EÐLI2GR05 og draga hann yfir á vorönn 2025. Þegar valinu er lokið er það staðfest með því að ýta á „Staðfesta val“

Hér má sjá í hvaða röð kjarnaáfangar eru teknir:

Hér eru þeir íslenskuáfangar sem eru fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku:

Hvernig á að velja?

  1. Skrá sig í inn í Innu.
  2. Smelltu á VAL.
  3. Veldu önn.
  4. Veldu áfanga úr lista með því að smella á hann.
  5. Skipt er á milli aðalvals og varavals með því að draga á milli kassa.
  6. Til að fá nánari upplýsingar um valinn áfanga, er bendli rennt yfir hann.
  7. Til að eyða áfanga er smellt á x.
  8. Þegar allir áfangar hafa verið valdir, skaltu smella á „Vista val“.

Hvað á að velja?

  1. Til að komast í Innu þarftu rafræn skilríki.
  2. Þegar í Innu er komið, ferðu inn á „Námið“ efst til hægri og velur þar „Námsferill – braut“. Þá sérðu brautarkröfuna og hvaða áföngum þú hefur lokið.
  3. Hluti bóknámsbrauta er frjálst val. Á heimasíðu skólans er listi yfir alla áfanga skólans og innihald þeirra.  Hér er einnig listi yfir áhugaverða valáfanga.
  4. Ef þú ert á bóknámsbraut þarftu að hafa í huga að af heildarfjölda eininga, sem er 200, mega einingar á 1. þrepi ekki fara upp fyrir 66 og einingar á 3. þrepi ekki vera færri 40.
  5. Í aðalval skaltu velja að hámarki 7 áfanga auk íþrótta. Í varaval skaltu velja 2-3 áfanga. Mikilvægt er að hafa áfanga í varvali því það er notað ef áfangi /áfangar í aðalvali komast ekki í töflu, eða eru felldir niður.

Umsjónarkennarinn þinn aðstoðar þig við valið ef þú þarft. Ef þú gengur ekki frá vali er litið svo á að þú ætlir ekki að þiggja skólavistá næstu önn og þú færð hvorki greiðsluseðil né stundatöflu.

Gangi þér vel!

NÝTT Í OKTÓBER 2025

Breytingar hafa verið gerðar á áfangaheitum í 3. tungumáli sem og íslensku sem annað móðurmál. Miða þessar breytingar að því að einfalda áfangaheitin og heitir t.d. 1. áfangi í spænsku ekki lengur SPÆN1AG05 heldur SPÆN1AA05 og svo næsti áfangi SPÆN1AB005 o.s.frv. Til að byrja með mun áfangaheitið vísa til gamla heitisins í sviga s.s. SPÆN1AA05 (AG).

Síðast uppfært: 09. október 2026