Próftafla fjarnáms

Lokapróf sumarannar eru frá 5. - 11. ágúst. Próftaflan birtist 23.júní.  Það þarf að tilkynna ef próf eru tekin utan FÁ fyrir 19. júlí á netfangið: fjarnam@fa.is  Nemandi þarf sjálfur að verða sér út um próftökustað erlendis. Sendiráð og ræðismannaskrifstofur taka almennt að sér að sjá um umsýslu lokaprófa. Einnig er hægt að leita til viðurkenndra menntastofnana/bókasöfn í næsta nágrenni við dvalarstað nemenda. 

Flutningur prófa á sjúkraprófsdag vegna áreksturs er án endurgjalds og þarf að skrá rafrænt HÉR 

Skrifstofa fjarnáms tekur ekki við beiðnum um tilfærslu prófa á aðra prófdaga.

Sjúkrapróf: Skráning í sjúkrapróf* er á rafrænu formi, sjá HÉR Skrifstofa fjarnáms tekur ekki við skráningu í sjúkrapróf í tölvupósti. Það þarf ekki að framvísa læknisvottorði.

  • Þú getur skráð þig í sjúkrapróf ef þú vilt færa til próf á sjúkraprófsdag þó það sé ekki árekstur í próftöflu þinni (verð kr. 2000.-)
  • Þú getur skráð þig í sjúkrapróf vegna veikinda (verð kr. 2000.-). 
  • Greiða skal fyrir sjúkrapróf með því að millifæra inn á reikning skólans nr. 0514-26-000351, kt.590182-0959.

Að gefnu tilefni:

  • Til að tryggja þér sjúkrapróf þarftu að skrá þig.
  • Sjúkrapróf er ekki endurtektarpróf. Ef nemandi þreytir lokapróf á hann ekki rétt á sjúkraprófi í áfanganum. 
  • sumarönnin er ekki útskriftarönn og því eru ekki endurtektarpróf í lok annar fyrir nemendur sem eru að ljúka síðustu áföngum upp í stúdentspróf

Ath. tímasetningar prófa eru mismunandi eftir prófdögum.

PRÓFTAFLA SUMARÖNN 2026 (til að leita að áfanga "Ctrl F" og skrifa áfangaheiti)

Síðast uppfært: 02. júní 2026