- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð
Lokapróf fjarnámsins eru haldin í Fjölbrautaskólanum við Ármúla, Ármúla 12, í lok haust-, vor- og sumarannar.
Upplýsingar um lokapróf, áreksturspróf, sjúkrapróf, sérúrræði í lokaprófum, prófsýningu, endurtektarpróf vegna útskriftar og útskrift:
Próftími lokaprófa í FÁ er 120 mínútur. Vægi lokaprófa er mismunandi eftir áföngum. Prófin eru staðbundin í húsnæði skólans og eru skrifleg (þ.e. ekki á rafrænu formi). Lokaprófs- og sjúkraprófsdagar eru fastir skv. próftöflu. Ekki er hægt að færa til próf á aðra daga. Það þarf að tilkynna sjúkrapróf til að tryggja próftöku. Á haust- og vorönn eru tveir sjúkraprófsdagar. Sá fyrri er fyrir lokapróf sem haldin eru á fyrri hluta próftöflunnar en sá seinni er fyrir lokapróf sem haldin eru á seinni hluta próftöflunnar.
Nemendur sem taka lokapróf utan FÁ, hérlendis eða erlendis*, þurfa að tilkynna það sérstaklega á skrifstofu fjarnáms fyrir 19. júlí: fjarnam@fa.is. Nemendur sem taka lokapróf utan FÁ þurfa almennt að greiða umsýslugjald til þeirra sem sjá um prófin. Upphæð gjaldsins er mismunandi eftir prófstöðum. Hér eru upplýsingar um mismunandi prófstaði.
*Þeir sem taka lokapróf erlendis þurfa sjálfir að verða sér út um próftökustað og ábyrgðarmann prófa á staðnum. Sendiráð og ræðismannaskrifstofur taka almennt að sér að sjá um umsýslu lokaprófa. Einnig er hægt að leita til viðurkenndra menntastofnana/bókasöfn í næsta nágrenni við dvalarstað nemenda. Hafðu samband við skrifstofu fjarnáms til að fá frekari upplýsingar, fjarnam@fa.is.
Árekstur í próftöflu: Ef tvö eða fleiri lokapróf stangast á á sama prófdegi má færa próf yfir á sjúkraprófsdag án endurgjalds. Skráning fer fram rafrænt HÉR
Sjúkrapróf: Hægt er að færa próf yfir á sjúkraprófsdag ef prófdagur hentar ekki. Greiða þarf fyrir slíkan flutning kr. 2000.- Það sama á við ef nemandi er veikur á prófdegi. Það þarf ekki að framvísa læknisvottorði. Hér ⇐ skráir þú þig í sjúkrapróf. (ath: skrifstofa fjarnáms tekur ekki við tilkynningum um sjúkrpróf í pósti). Greiðsluupplýsingar: reikningur nr. 0514-26-000351, kt.590182-0959.
Ef þú tekur lokapróf áttu ekki rétt á að taka sjúkrapróf.
Þeir sem taka próf erlendis eða úti á landi verða að tilkynna veikindi/forföll bæði til FÁ (fjarnam@fa.is) en einnig á prófstað.
Sérúrræði fyrir nemendur með lesblindu eða annan staðfestan vanda sem trufla próftöku:
Nemendur sem óska eftir sérúrræðum í lokaprófum þurfa að tilkynna það til skrifstofu fjarnáms fyrir 19. júlí á netfangið: fjarnam@fa.is. Nemandi þarf ekki að sækja um aukinn próftíma. Próftími í fjarnámi FÁ er 120 mínútur en venjulegur próftími á framhaldsskólastigi er 90 mínútur. ATH: Ef nemandi tekur lokapróf utan FÁ er ekki sjálfgefið að hægt sé að verða við óskum um sérúrræði í lokaprófum, fyrst og fremst vegna aðstöðuleysis á prófstað.
Sérúrræði sem boðið er upp á:
Nemendur geta óskað eftir að fá tölvu í prófi sem veitir þeim aðgang að Google translate án nettengingar. Sækja þarf um fyrir 19. júlí á netfangið: fjarnam@fa.is.
ATH: Ef nemandi tekur lokapróf utan FÁ er ekki sjálfgefið að hægt sé að verða við óskum um sérúrræði í lokaprófum, t.d. vegna aðstöðuleysis á prófstað.
Prófsýning:
Það er engin formleg prófsýning á sumarönn en hægt að koma og skoða samkvæmt samkomulagi.
Endurtektarpróf vegna útskriftar:
Sumarönn er ekki útskriftarönn og því eru ekki endurtektarpróf á önninni.
Nemandi sem er skráður til útskriftar á námsönn á rétt á einu endurtektarprófi ef hann fellur í áfanga. Viðkomandi þarf fyrst að þreyta lokapróf til að eiga rétt á endurtektarprófi. Ef nemandi fellur í tveimur áföngum sem hann þarf til útskriftar fellur niður réttur hans til endurtökuprófs. Nemandi í fjarnámi FÁ sem er skráður útskriftarefni annars skóla á rétt á endurtektarprófi í FÁ ef hann hefur náð öllum öðrum áföngum (í FÁ og í öðrum skólum sem viðkomandi stundar nám). Útskriftarefni annarra skóla þurfa að greiða gjald fyrir endurtektarpróf. Nemandi sem er útskrifaður sem stúdent á ekki rétt á endurtektarprófi í þeim áföngum sem viðkomandi er í eftir útskrift. Þetta á einnig við um alla aðra nemendur sem eru ekki skráðir til útskriftar á námsönn.
Útskrift:
Ertu að útskrifast frá FÁ eða öðrum framhaldsskóla? Til að tryggja þá þjónustu sem þú átt rétt á sem útskriftarefni annarinnar skaltu hafa samband við skrifstofu fjarnámsins; fjarnam@fa.is Útskriftarefni fjarnáms eiga rétt á einu endurtektarprófi ef þeir ná ekki lágmarkseinkunn í lokaprófi. Útskriftarnemendur annarra skóla eiga einnig rétt á endurtektarprófi í fjarnámsáfanga ef skólinn sem viðkomandi útskrifast frá staðfestir réttinn til endurtöku.
Ertu með prófkvíða? Hér eru Góð ráð við prófkvíða