- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
Fjölbrautaskólinn við Ármúla tekur þátt í ýmsum samstarfs- og samskiptaverkefnum.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla var fyrsti framhaldsskólinn á Íslandi til að flagga grænfánanum. Skólinn hefur tekið öflugan þátt í skólum á grænni grein frá árinu 2006 og flaggaði sínum tuttugasta fána árið 2025. Það er markmið skólans að vera áfram í fararbroddi á sviði umhverfismála og taka ný skref fram á við á hverju ári. Áhersla er lögð á að rekstur skólans og daglegt líf innan hans sé með vistvænum hætti. Að auki er markvisst unnið með að styrkja gildismat og viðhorf nemenda og starfsfólks til verndunar náttúrunnar og umhverfisvæns lífsstíls.
Verkefnið Græn skref er árangursrík leið fyrir stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins að vinna markvisst að umhverfismálum í skrifstofustarfssemi sinni. Skrefin eru alls fimm og unnið er eftir skýrum gátlistum. Fjölbrautaskólinn við Ármúla náði fimmta skrefinu í október 2022.
Umhverfisstofnun sér um úttektir og utanumhald verkefnisins. Þegar fimmta og síðasta skrefinu er náð er endurmat framkvæmt á tveggja ára fresti. Verkefnið er frábær leið til þess að virkja starfsmenn og miðla fræðslu um umhverfis- og sjálfbærnimál.
Skólinn hefur gerst þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli sem er samstarfsverkefni Lýðheilsustofnunar, mennta-og menningarmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF), Hagsmunaráðs íslenskra framhaldsskólanema (HÍF) og 23 framhaldsskóla í landinu. Hugmyndafræði verkefnisins felur í sér heildræna nálgun í forvarna-og heilsueflingarmálum, þar sem markmiðið er að hafa áhrif á viðhorf og tilfinningu nemenda fyrir heilbrigðu lífi og þátttöku þeirra í samfélaginu í nánum tengslum við nærumhverfi á hverjum stað. Meginþemu verkefnisins eru: næring, hreyfing, geðrækt og lífsstíll.
Sjá nánar á vef landlæknisembættisins með því að smella á myndina:
Fjölbrautaskólinn við Ármúla er UNESCO-skóli og byggir því stefnu sína á hinum 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Við einsetjum okkur að nemendur, starfsfólk og allt skólasamfélagið leggi sig fram við að gera það sem það er megnugt til að stuðla að sjálfbærni jarðar á öllum sviðum. Við hugsum vel um okkur sjálf, umhverfi okkar og hvert annað. Saman lærum við að vera góðar manneskjur, öðlast fjölbreytta þekkingu, koma góðum hlutum í framkvæmd og lifa saman í sátt og samlyndi.
Erasmus+
Fjölbrautaskólinn við Ármúla er með vottun sem Erasmus+ skóli. Með þessu er staðfest að skólinn hafi unnið vandaða áætlun um fjölþjóðlegt samstarf og náms- og þjálfunarleiðir sem hluta af stefnumörkun til framtíðar. Þeir skólar sem fá þessa vottun staðfesta, munu hafa einfaldari aðgang að styrkjamöguleikum náms- og þjálfunarverkefna í nýrri menntaáætlun Erasmus+.