Hvernig komum við í veg fyrir útrýmingu dýra? - frétt frá nemenda í umhverfisfræði

Geirfuglar
Geirfuglar

Útrýmingarhætta þýðir að lífvera eigi í hættu á að deyja út. Þetta er ekki aðeins notað fyrir dýr heldur líka plöntur og sveppi.

Til eru flokkar yfir hversu líklegt er að lífvera deyi út sem koma frá IUCN ((International Union for Conservation of Nature). Helstu flokkarnir eru CR (í bráðri útrýmingarhættu), VU (í viðkvæmri stöðu) og EN (í útrýmingarhættu). Rannsóknir frá IUCN sýna að eitt af fjórum landspendýrum er í útrýmingarhættu og eitt af þremur sjávarspendýrum

Það geta verið margar ástæður fyrir því að lífverur deyi út en aðal orsakirnar eru vegna loftslagsbreytinga eða af völdum manna. Manneskjur rífa niður heimili dýra, drepa þau fyrir minjagripi og við erum að einhverju leiti ábyrg fyrir loftslagsbreytingum.

Á Íslandi eru margar fuglategundir í útrýmingarhættu. Lundinn er í mikilli útrýmingarhættu og flokkast sem CR. Fálkinn er líka í mikilli útrýmingu og flokkast sem EN.

Það eru nokkur spendýr sem eru í útrýmingarhættu hér á landi og nokkur sem eru nú þegar dáin út. Bæði rostungurinn og sandlægjan eru útdauð á Íslandi og sléttbakurinn er í bráðri útrýmingarhættu og hefur verið það í mörg ár.

Geirfuglinn er örugglega þekktasta dæmið hér á landi um dýr sem hefur dáið út, ekki bara á Íslandi heldur í heiminum öllum. Hann var stærstur svartfugla og var um 70 cm á hæð. Geirfuglinn var víða um Norðvestur-Evrópu og við Nýfundnaland. Á Íslandi er talið að stofn geirfuglsins hafi alltaf verið frekar fámennur og var hann aðeins nokkur hundruð til þúsund para.

Mikil ofveiði var á geirfuglinum þar sem hann var ófleygur og hægur. Menn króuðu marga fugla saman í rétti, rotuðu þá eða snéru úr hálslið. Einn geirfugl gaf aðeins 1,5 kg af kjöti ásamt smá fitu og lýsi. Síðustu geirfuglarnir sem til voru í heiminum voru drepnir í Eldey á Íslandi árið 1844. Er þetta frægasta dæmi um útrýmingu dýrategundar hér á landi og er oft notað sem dæmi um áhrif ofveiði.

En í dag eru margar leiðir hér á landi til að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Það eru til lög sem banna nánast alla fuglaveiði algjörlega eða á ákveðnum árstíðum, almennt er bannað að veiða villta fugla nema að ákveðin undartekning sé til. Einnig eru búsvæði fugla vernduð og vísindamenn gera sitt besta til að grípa inn eins fljótt og mögulega þegar stofn ákveðinna tegunda fer að minnka.

Steinunn Birna Garðarsdóttir