Árdagur 2026

Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 er Árdagur í FÁ

Árdagur er þemadagur þar sem skóladagurinn er brotinn upp og í stað hefðbundinnar kennslu skemmta nemendur og starfsfólk sér saman.

Nemendur skrá sig í hópa og leysa þrautir sem starfsfólk eru búið að undirbúa. Í hádeginu er svo Söngkeppni FÁ og síðan verður pizzuveisla í boði fyrir nemendur.

Skráning

Skráning í lið hefst á skrifstofunni á fimmtudaginn 19. febrúar. Um 20 lið eru í boði í mismunandi litum. Nemendur eru svo hvattir til að mæta í þemalit síns liðs á Árdeginum.

Liðsstjórar

Eldri nemendur geta skráð sig sem liðsstjóra og geta verið 1-2 í hverju liði.  

Hlutverk liðsstjóra er að halda utan um lið sitt, taka niður mætingar, peppa upp góða stemningu ofl. 

Ef þú vilt vera liðsstjóri þá geturðu sent póst á Vigdísi (vigdisfrida@fa.is) eða Söru (sara@fa.is)

Dagskrá

8:15              Liðsstjórar mæta.

8:30             Mæting í stofur með þínum hóp og undirbúningur.

8:50             Hópurinn leggur af stað, 18 stöðvar með skemmtilegum þrautum.

11:50            Hlé 

12:00           Söngkeppni FÁ hefst.

13:00            Sigurvegari kynntur.  Pizzur og gos í boði skólans.

 

Síðast uppfært: 09. febrúar 2026