Skráning í sjúkra-/árekstrarpróf

Hér skráir þú þig í sjúkra-/árekstrarpróf á sumarönn 2026 => skrá 

  • Nemandi þarf að skrá sig í árekstrarspróf fyrir 19.júlí. Nemandi þarf að skrá sig í sjúkrapróf í síðasta lagi á prófdag, fyrir settan próftíma. Lokað verður fyrir skráningu eftir það.
  • Ef það er árekstur* í próftöflu (tvö eða fleiri próf lenda á sama próftíma) þarftu að flytja annað þeirra án endurgjalds á sjúkraprófsdag. Ekki er æskilegt að taka tvö próf á sama tíma en við gerum ráðstafanir á sjúkraprófsdögum fyrir þá sem þurfa að taka tvö eða fleiri sjúkra-/árekstrarpróf.  *Árekstur í próftöflu er þegar eitt eða fleiri próf eru á sama tíma. Það telst ekki árekstur ef próf eru á sama degi en á mismunandi tímum.
  • Hægt er að færa próf yfir á sjúkraprófsdag ef prófdagur hentar ekki. Greiða þarf fyrir slíkan flutning kr. 2000.-
  • Ef nemandi er veikur á prófdegi þarf hann að skrá sig í sjúkrapróf fyrir settan próftíma. Greiða þarf einnig fyrir sjúkrapróf kr. 2000.- ATH: það þarf ekki að framvísa læknisvottorði
  • Greiðsluupplýsingar: reikningur nr. 0514-26-000351, kt.590182-0959.
  • Skrifstofa fjarnáms tekur ekki við tilkynningum um sjúkrapróf í pósti.

Athugið:

  1. Ef nemandi tekur lokapróf á hann ekki rétt á að taka sjúkrapróf.
  2. Sumarönn er ekki útskriftarönn og því eru ekki endurtektarpróf í boði fyrir nemendur sem eru að ljúka einingum til stúdentsprófs.
  3. Ef nemandi er útskriftarefni á haust- eða vorönn á hann rétt á einu endurtektarprófi á þeim önnum sama í hversu mörgum skólum viðkomandi er í. Til að eiga rétt á endurtektarprófi þarf nemandi að þreyta lokaprófið.

 

Síðast uppfært: 24. júní 2026