Skuggakosningar

Þann 28. og 29. apríl fara fram Skuggakosningar í FÁ. Skuggakosningar eru eru kosningar þar sem framhaldsskólanemar kjósa sína fulltrúa í sveitarstjórn og munu endurspegla vilja nemenda um allt land.

Þriðjudaginn 28. apríl verða umræður í fyrirlestrarsal með fulltrúum allra stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til sveigarstjórnarkosninga 16. maí. Umræðurnar byrja kl. 12:00. Markmiðið er að skapa stemningu og fylla salinn. Spurningar frá nemendum velkomnar.

Miðvikudaginn 29. apríl verða Skuggakosningarnar sjálfar á Steypunni frá kl. 9:00 - 13:00. Á kjörskrá eru nemendur FÁ fæddir 15.maí 2004 eða síðar.