Endursetja fjölþátta auðkenningu (MFA)

 

Ef MFA spor fyrir fjölþátta auðkenningu er ekki virkt, t.d. ef notandi er með nýjan síma, þarf að endursetja fjölþátta auðkenningu og setja MFA auðkenningu upp aftur. 

Hér fyrir neðan er sýnt hvernig endursetningarferlið er.

 

Þegar inn er komið þarf að endursetja fjölþátta auðkennið. Veldu því hnappinn Endursetja.

 

Upp kemur aðvörun um að fjölþátta auðkenni (MFA) hreinsast af reikningnum þínum.

 

Nú kemur upp spurning hvort þú sért viss um að endursetja fjölþátta auðkennið. Ef þú ert viss þá þarftu að velja Fjölbrautaskólann við Ármúla í fellilistanum á myndinni hér fyrir neðan.

Eftir að smellt hefur verið á hnappinn „Endursetja“ geta liðið nokkrar sekúndur þar til skilaboðin hér fyrir neðan birtast.

Eftir að fjölþátta auðkennið hefur verið endursett getur notandinn skráð sig inn í Moodle á upphafssíðu FÁ. 

Í innskráningarferlinu inn í kennslukerfið Moodle er notandinn beðinn um skólanetfang, lykilorð og síðan að virkja fjölþátta auðkenni (MFA). Leiðbeiningar er að finna á vefsíðunni Tækniaðstoð  

Síðast uppfært: 06. júní 2026