Fjarnám FÁ - prufa

Skráning í fjarnám á vorönn 2026 hefst 2. janúar og stendur til 25. janúar. 

Önnin hefst 27. janúar.

Námsannir í fjarnámi FÁ eru þrjár; haust-, vor og sumarönn.

Haust- og vorannir vara í 12 vikur en sumarönn varir í 8 vikur.

Prófdagar eru auglýstir á heimasíðu skólans áður en skráning á nýrri önn hefst.

Lokapróf eru staðbundin, í húsnæði skólans og eru ekki rafræn.

Að gefnu tilefni; Nemandi þarf að ná lágmarkseinkunn 4,5 á lokaprófi, áður en einkunnir fyrir

próf og/eða verkefni sem unnin eru á önninni eru reiknaðar inn í lokaeinkunn.

Prófstaðir eru fjölmargir utan FÁ, innanlands og erlendis, sjá upplýsingar hér.

 

 

Síðast uppfært: 04. nóvember 2025