TÖLE3LG05 - Þrívíðarhönnun tölvuleikja

Undanfari : TÖHÖ2LH05
Í boði : Haust, Haustönn 2027

Lýsing

Í áfangum er farið yfir grunnatriði í Unity leikjavélinni og Blender þrívíddarforritinu. Nemendur læra að hanna þrívíddarmódel í Blender og búa til leikjaheimi í þrívídd í Unity. Áfanginn leggur áherslu á tölvuleiki en aðferðirnar gagnast á fleiri sviðum, þar á meðal í listum, nýsköpun og stafrænni hönnun.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnatriðum í Unity leikjavélinni
  • grunnatriðum í Blender þrívíddarforritinu
  • heimi tölvuleikja og þeim iðnaði sem býr að baki

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • búa til, bæta efni við og breyta skjölum í Unity 3D
  • þróa stafrænt umhverfi í þrívídd
  • búa til þrívíddarmódel
  • huga lýsingu og framsetningu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Setja saman grunn að einföldum leik í þrívídd
  • Takast á við frekara nám á sviði tölvuleikja eða stafrænni hönnun

Kennslugögn:

  • Fást hjá kennara