- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð

Það geta komið tímabil þar sem okkur líður illa, eitthvað verður erfitt eða við vitum einfaldlega ekki hvernig við eigum að takast á við það sem er í gangi. Þú þarft ekki að vera í miklum vanda til að leita þér aðstoðar og þú þarft ekki heldur að vita nákvæmlega hvers konar aðstoð þú þarft.
Hér höfum við tekið saman ýmis úrræði sem standa ungu fólki til boða. Sum þeirra bjóða upp á ráðgjöf og stuðning, önnur sérhæfðari þjónustu og víða er hægt að fá aðstoð ókeypis, í trúnaði eða nafnlaust.
Í skólanum er hægt að leita til náms- og starfsráðgjafa, skólasálfræðings, forvarnarfulltrúa og hjúkrunarfræðings vegna ýmissa málefni sem geta hvílt á nemendum, svo sem kvíða, vanlíðanar, námsvanda, prófkvíða, samskipta og persónulegra erfiðleika. Þau eru öll bundnin trúnaði.
Á heimasíðu skólans er hnappur sem hægt er að smella á til að tilkynna einelti, ofbeldi eða kynbundið áreiti. Tilkynningin mun berast til námsráðgjafa og farið er með allar tilkynningar sem trúnaðarmál.
Stundum vilja nemendur fá að tala við einhvern annan í trúnaði og jafnvel nafnlaust um persónulegri málefni.
Hér gefur að líta yfirlit yfir þá staði sem hægt er að leita til.
Heilsuvera – upplýsingar fyrir ungmenni
Á ungmennasíðu Heilsuveru er einnig að finna góðar og áreiðanlegar upplýsingar um ýmislegt sem tengist heilsu og líðan ungs fólks, meðal annars svefn og hvíld, næringu, kynheilbrigði, hreyfingu, andlega líðan, áfengi, tóbak og nikótín, ofbeldi og vanrækslu.
Heilsuvera / 1700 - heilbrigðisráðgjöf og netspjall
Á heilsuveru er hægt að fá heilbrigðisráðgjöf í síma 1700 allan sólarhringinn og einnig ráðgjöf í netspjalli Heilsuveru. Þetta getur verið mjög góður fyrsti viðkomustaður þegar ungmenni veit ekki hvert það á að leita.
Ef þú eða einhver annar er í hættu eða þarfnast aðstoðar strax, skaltu hringja í 112. Neyðarverðir eru á vakt allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Á 112.is er einnig í boði netspjall fyrir fólk sem þarf aðstoð og upplýsingar um meðal annars ofbeldi, kynferðisofbeldi, heimilisofbeldi og aðrar erfiðar aðstæður. Þar er einnig fræðsluefni ætlað börnum og unglingum.
1717 – Hjálparsími Rauða krossins
Ekkert vandamál er of lítið eða of stórt fyrir 1717. Hægt er að hringja í 1717 eða hafa samband í gegnum netspjall Rauða krossins. Þjónustan er ókeypis, opin allan sólarhringinn og trúnaði og nafnleynd er heitið.
Þú getur haft samband vegna alls þess sem þér liggur á hjarta, til dæmis kvíða, vanlíðanar, einmanaleika, samskipta, ástarmála, eineltis, ofbeldis, sorgar, áfalla, námsörðugleika eða neyslu- og fíknivanda. Þjálfaðir sjálfboðaliðar veita hlustun, sálfélagslegan stuðning og upplýsingar um úrræði.
Á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni er hægt að fá aðstoð og ráðgjöf vegna bæði líkamlegrar og andlegrar heilsu.
Sjúktspjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni yngri en 20 ára af öllum kynjum sem vilja ræða áhyggjur af samböndum sínum, samskiptum eða ofbeldi. Spjallið er opið mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 20:00–22:00.
Vinfús er hópastarf í Hinu húsinu fyrir ungmenni á aldrinum 16 – 25 ára sem vilja kynnast nýju fólki eða hafa einangrast í skóla eða öðrum félagslegum aðstæðum. Markmiðið er að draga úr félagslegri einangrun og efla félagstengsl ungs fólks.
Taktu skrefið er úrræði fyrir fólk sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi. Þar starfa sálfræðingar með sérþekkingu á þessu sviði sem aðstoða ungmenni og fullorðna.
Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja einnig við aðstandendur. Boðið er upp á viðtöl og stuðningshópa fyrir 18 ára og eldri.
Píeta-síminn 552 2218 er opinn allan sólarhringinn. Í neyðartilvikum skal ávallt hringja í 112.
Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk á aldrinum 12–25 ára. Þjónustan er gjaldfrjáls og engin tilvísun er nauðsynleg. Hvort sem um er að ræða stórar áskoranir eða litlar áhyggjur er alltaf pláss fyrir samtal.
Hjá Geðhjálp starfa fagmenntaðir ráðgjafar sem veita fólki með geðrænan vanda og aðstandendum þess ráðgjöf án endurgjalds.
Ráðgjöfin getur farið fram í viðtali, síma eða með tölvupósti. Hún er leiðbeinandi en kemur ekki í stað meðferðar. Viðtöl eru veitt virka daga og þarf að panta tíma fyrirfram. Hægt er að hafa samband í síma 570 1700 kl. 9:00–15:00 á virkum dögum.
SÁÁ veitir ráðgjöf og meðferð fyrir fólk sem glímir við áfengis-, vímuefna- eða spilafíkn og býður einnig upp á stuðning og ráðgjöf fyrir aðstandendur.
Sérstök ungmennamedferð er fyrir ungt fólk yngra en 25 ára. Þar starfar teymi fagfólks og boðið er upp á fjölbreytt meðferðarúrræði. Ungt fólk getur einnig leitað til göngudeildar SÁÁ til að fá mat á vanda sínum og upplýsingar um hvaða aðstoð hentar best.
Hægt er að hafa samband við SÁÁ í síma 530 7600.
112 – Ofbeldi og barnavernd
Á 112.is er netspjall fyrir þolendur ofbeldis og aðra sem þurfa aðstoð. Ofbeldi eða vanrækslu barna er hægt að tilkynna til barnaverndar með því að hringja í 112.
Barnavernd getur aðstoðað börn og ungmenni undir 18 ára aldri þegar aðstæður heima eru erfiðar, vegna vanrækslu, ofbeldis, vímuefnavanda, alvarlegs hegðunarvanda o.fl. Barna- og fjölskyldustofa er síðan með sértæk meðferðarúrræði sem barnaverndarþjónusta getur sótt um.
Sjúktspjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni yngri en 20 ára af öllum kynjum til að ræða áhyggjur af samböndum sínum, samskiptum eða ofbeldi.
Neyðarmóttaka vegna kynferðisofbeldis
Neyðarmóttakan er fyrir þolendur kynferðisofbeldis og er staðsett á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi.
Stígamót eru ráðgjafar- og fræðslumiðstöð sem vinnur gegn kynferðisofbeldi.
Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og býður áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og upplýsingar fyrir þolendur ofbeldis 18 ára og eldri.
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs
Ef þú hefur orðið fyrir eða orðið vitni að einelti, áreitni eða ofbeldi í íþrótta- eða æskulýðsstarfi getur þú leitað til Samskiptaráðgjafa. Þar er hægt að fá ókeypis ráðgjöf og aðstoð við að koma málinu í réttan farveg.
Ef þú hefur áhyggjur af matarvenjum þínum, líkamsímynd, átköstum, mikilli stjórnun á mat eða öðrum einkennum átröskunar er mikilvægt að leita aðstoðar. Þú getur byrjað á að ræða við hjúkrunarfræðing í skólanum eða leitað til heilsugæslunnar. Þar er hægt að meta vandann og vísa áfram í sérhæfða þjónustu ef þörf er á.
Heilsuvera er líka með mjög gott ungmennasvæði, þar sem fjallað er m.a. um næringu, líkamsímynd, líðan, kynheilbrigði, áfengi og félagsleg réttindi.
Hægt er að leita til heilsugæslunnar með spurningar eða áhyggjur sem tengjast kynheilbrigði, svo sem getnaðarvörnum, kynsjúkdómum, kynlífi og öðrum persónulegum málum. Á Heilsuveru er einnig að finna upplýsingar um kynheilbrigði sérstaklega ætlaðar ungu fólki.
Fyrir neteinelti og erfið samskipti á netinu er Æskulýðsvettvangurinn góður upplýsingavefur fyrir börn og ungmenni. Þar er m.a. fjallað um neteinelti, fordóma, hatursorðræðu og örugga netnotkun.
Samtökin ’78 eru hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi. Samtökin veita meðal annars fræðslu, ráðgjöf og stuðning og vinna að bættum réttindum hinsegin fólks.
Aðsetur: Suðurgata 3, 101 Reykjavík. Sími: 552 7878. Netfang: skrifstofa@samtokin78.is
Hjá W.O.M.E.N. geta erlendar konur fengið ráðgjöf um réttindi sín og úrræði á Íslandi. Samtökin aðstoða sérstaklega konur sem verða fyrir ofbeldi.