Gervigreind í námi

Helstu reglur um notkun gervigreindar

Gervigreind getur verið gagnlegt tæki í námi, sérstaklega í fjarnámi þar sem nemendur vinna að miklu leyti sjálfstætt. Notkun hennar þarf þó ávallt að samræmast námsmarkmiðum og leiðbeiningum kennara.

  • Nemendur skulu fylgja fyrirmælum kennara um notkun gervigreindar í verkefnum og námsmati. Ef óljóst er hvort eða hvernig megi nota gervigreind skal leita leiðsagnar hjá kennara.
  • Sömu reglur gilda um gervigreind og aðrar heimildir. Nemendur bera ábyrgð á að vísa rétt til heimilda og fylgja viðurkenndum reglum um heimildaskráningu.
  • Ef gervigreind er notuð við verkefnavinnu skulu nemendur geta útskýrt:
    • hvernig hún var nýtt,
    • hvaða hlutar verkefnisins byggja á aðstoð hennar,
    • og hvernig upplýsingar voru sannreyndar og metnar.
  • Nemendur bera ávallt ábyrgð á því efni sem þeir skila inn, óháð því hvort gervigreind hafi komið að vinnunni.
  • Notkun gervigreindar sem brýtur gegn fyrirmælum kennara eða reglum skólans getur leitt til þess að verkefni eða námsmat teljist ógilt.

Dæmi um ábyrga notkun

Gervigreind getur stutt við nám og skilning með því að:

  • útskýra flókin hugtök á einfaldan hátt,
  • aðstoða við að skipuleggja nám og verkefnavinnu,
  • hjálpa nemendum að vinna sig í gegnum nýtt námsefni skref fyrir skref,
  • taka saman meginatriði úr löngum textum,
  • styðja við hugmyndavinnu og mótun rannsóknarspurninga,
  • veita endurgjöf á drög að verkefnum,
  • benda á mismunandi sjónarmið og hjálpa til við gagnrýna umræðu.

Mikilvægt að hafa í huga

Gervigreind er hjálpartæki en kemur ekki í stað eigin náms og gagnrýninnar hugsunar.

  • Svör frá gervigreind geta verið röng, ófullnægjandi eða byggð á röngum forsendum.
  • Nemendur þurfa alltaf að sannreyna upplýsingar áður en þær eru notaðar í verkefnum.
  • Ritstuldur er óheimill, hvort sem efni er tekið úr bókum, af vefsíðum eða búið til með gervigreind.
  • Þegar efni frá gervigreind er nýtt í verkefnum skal gera grein fyrir notkuninni og vísa til hennar samkvæmt leiðbeiningum kennara.
  • Markmið námsins er að nemendur byggi upp eigin þekkingu, færni og skilning. Gervigreind á að styðja við það ferli en ekki leysa það af hólmi.
Síðast uppfært: 01. september 2026