UPPL1SF05 - Stafræn færni

Í boði : Haust, Haustönn 2027
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Markmið áfangans er að efla stafræna færni nemenda meðal annars í gegnum sköpun. Nemendur nota tölvur, netið, gervigreind og hugbúnað á praktískan hátt og einnig sem leið til sköpunar og tjáningar. Áfanginn tekur mið af tölvu- og tækniþróunar hverju sinni svo áherslur geta breyst á milli ára.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • almennri tölvu- og netnotkun
  • möguleikum gervigreindar
  • stafrænum lausnum sem geta gagnast í námi og starfi
  • völdum verkfærum sem gagnast við stafræna sköpun og tjáningu

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • afla upplýsinga á netinu
  • nota tölvur og tækni í almennri verkefnavinnu
  • nota tölvur og tækni á skapandi hátt

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta eigin þekkingu og hæfni í skapandi tilgangi
  • nýta sér möguleika tölvu og hugbúnaðar í praktískum tilgangi
  • efla gagnrýna hugsun og stafræna borgaravitund

Kennslugögn:

  • Kennslugögn fást hjá kennara. Í sumum tilfellum þurfa nemendur að hafa aðgang að snjallsíma eða snjalltæki.