Virkja fjölþátta auðkenningu

Farðu inn á heimasíðu FÁ (www.fa.is) og veldu Moodle hnappinn í stikunni efst á síðunni. Sjá mynd hér fyrir neðan.

Smelltu á hnappinn „ Hér skráir þú þig inn í Moodle“.


 

Þú skráir þig inn í Moodle með skólanetfanginu þínu og lykilorði, sjá mynd 1 og 2.
Skólanetfangið þitt var sent í SMS skilaboðum í upphafi annar.


Mynd 1.

 

Ef þú hefur verið í námi í FÁ á undanförnum misserum þá er eldra lykilorð virkt.
Ef þú veist ekki lykilorðið þá smelltu á hnappinn Endursetja, breyta eða virkja lykilorð sjá mynd 2.
Nánari leiðbeiningar um að endursetja, breyta eða virkja lykilorð er að finna á vefsíðunni - Tækniaðstoð.


Mynd 2.

Nú er óskað eftir að virkja fjölþátta auðkenningu (MFA). Veldu hnappinn Next.

Mynd 3.

 

Ef þú ert þegar með Microsoft Authenticator appið á snjalltækinu þínu geturðu haldi áfram með því að velja Next hnappinn. Ef þú ert ekki með Microsoft Authenticator appið uppsett á snjalltækinu þínu þá þarftu að sækja það í Gootle Play eða App Store í gegnum símann þinn og setja það upp áður en lengra er haldið. 

Mynd 4.

Núna er óskað eftir að tengja notendareikninginn þinn við Microsoft Authenticator appið. Smelltu á Next til að halda áfram.

Mynd 5.

Á snjalltækinu þínu þarftu að opna Microsoft Autenticator appið.
Næst skaltu smella á plúsinn efst í hægra horninu á Microsoft Authenticator appinu.

Mynd 6.

Veldu Work or school account.

Mynd 7.

Veldu Scan QR code

Mynd 8.

Beindu nú snjalltækinu þínu á myndina af  QR kóðanum á tölvunni þinni.


Mynd 9.

Næst er að staðfesta að samhæfing milli skólanetfangs og Athenticator apps hafi tekist.

Mynd 10.

 

Í Microsoft Authenticator appinu í snjalltækinu þínu er að finna gluggann Are you trying to sign in?
Skráðu inn númerið sem er á skjánum á tölvunni þinni. 

Mynd 11.

 

Ef samhæfing hefur tekist koma skilaboðin Authenticator Added. 

Mynd 12. 

Þökkum þolinmæðina. Nú áttu að vera komin inn í kennslukerfið Moodle ef þú velur valkostinn Yes.

Mynd 13.
Síðast uppfært: 06. júní 2026