Val í Innu
Ítarlegar leiðbeiningar fyrir val í tölvu
Stuttar leiðbeiningar fyrir val í síma
Val fyrir vorönn 2024 stendur nú yfir og verður opið til 3. nóvember. Með vali staðfestir þú umsókn þína um skólavist á næstu önn.
Hér er síða með skemmtilegum valáföngum sem eru í boði á vorönn 2024.
Hvernig á að velja?
- Skrá sig í inn í Innu.
- Smelltu á VAL.
- Veldu önn.
- Veldu áfanga úr lista með því að smella á hann.
- Skipt er á milli aðalvals og varavals með því að draga á milli kassa.
- Til að fá nánari upplýsingar um valinn áfanga, er bendli rennt yfir hann.
- Til að eyða áfanga er smellt á x.
- Þegar allir áfangar hafa verið valdir, skaltu smella á „Vista val“.
Hvað á að velja?
- Til að komast í Innu þarftu rafræn skilríki.
- Þegar í Innu er komið, ferðu inn á „Námið“ efst til hægri og velur þar „Námsferill – braut“. Þá sérðu brautarkröfuna og hvaða áföngum þú hefur lokið.
- Hluti bóknámsbrauta er frjálst val. Á heimasíðu skólans er listi yfir alla áfanga skólans og innihald þeirra.
- Ef þú ert á bóknámsbraut þarftu að hafa í huga að af heildarfjölda eininga, sem er 200, mega einingar á 1. þrepi ekki fara upp fyrir 66 og einingar á 3. þrepi ekki vera færri 40.
- Í aðalval skaltu velja að hámarki 7 áfanga auk íþrótta. Í varaval skaltu velja 2-3 áfanga. Mikilvægt er að hafa áfanga í varvali því það er notað ef áfangi /áfangar í aðalvali komast ekki í töflu, eða eru felldir niður.
Umsjónarkennarinn þinn aðstoðar þig við valið ef þú þarft. Ef þú gengur ekki frá vali er litið svo á að þú ætlir ekki að þiggja skólavistá næstu önn og þú færð hvorki greiðsluseðil né stundatöflu.
Gangi þér vel!
(Síðast uppfært 27.10.2023)