- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Tækniaðstoð
- Office 365
- Lykilorð
Vantar þig betra skipulag, aðstoð við glósur eða góð ráð fyrir prófalesturinn? Hér höfum við tekið saman gagnleg öpp, forrit og vefsíður sem geta hjálpað þér að læra á þinn hátt.
Hvort sem þú vilt halda utan um verkefni og skiladaga, bæta einbeitinguna, búa til hugarkort eða nýta gervigreind við námið geturðu fundið eitthvað við þitt hæfi.
Flest verkfærin eru ókeypis eða bjóða upp á ókeypis grunnútgáfu.

Áttu erfitt með að halda utan um verkefni og skiladaga? Þessi öpp hjálpa þér að skipuleggja námið, forgangsraða verkefnum og nýta tímann betur.
Skipulagsapp sérstaklega hannað fyrir nemendur. Haltu utan um stundatöflu, heimavinnu, próf og skiladaga og fáðu áminningar um það sem er fram undan.
Búðu til verkefnalista, settu skilafresti og forgangsraðaðu því sem þarf að gera. Merktu við verkefni þegar þeim er lokið.
Skipuleggðu verkefni á sjónrænum töflum með dálkum eins og „Óunnið“, „Í vinnslu“ og „Lokið“. Hentar sérstaklega vel fyrir hópverkefni.
Skráðu kennslustundir, próf, verkefnaskil og aðrar tímasetningar á einn stað. Stilltu áminningar svo ekkert gleymist.
Sameinaðu verkefnalista, glósur, dagatal og skipulag á einum stað. Búðu til sérstakt vinnusvæði fyrir hverja námsgrein.<

Skipuleggðu glósurnar þínar, tengdu saman hugmyndir og fáðu betri yfirsýn yfir námsefnið.
Stafræn glósubók þar sem þú getur skrifað glósur, teiknað, sett inn myndir og flokkað efni eftir námsgreinum.
Skrifaðu glósur með penna á spjaldtölvu, teiknaðu skýringarmyndir og merktu beint inn á PDF-skjöl.
Xmind
Búðu til hugarkort sem hjálpa þér að skipuleggja hugmyndir, tengja saman hugtök og sjá heildarmyndina.

Gerðu prófundirbúninginn fjölbreyttari með minnisspjöldum, spurningaleikjum og æfingum.
Búðu til minnisspjöld (flashcards) með spurningum og svörum. Hentar vel til að læra hugtök, orðaforða og skilgreiningar.
Minnisspjöld sem birtast aftur með ákveðnu millibili til að hjálpa þér að muna námsefnið betur til lengri tíma.
Lærðu með spurningaleikjum og prófaðu þekkingu þína á skemmtilegan hátt, einn eða með vinum.
Búðu til minnisspjöld og æfingapróf úr glósum og námsefni. Prófaðu þekkinguna áður en kemur að prófinu.

Áttu erfitt með að halda einbeitingu? Prófaðu verkfæri sem hjálpa þér að skipta námstímanum í vinnulotur og taka regluleg hlé.
Ræktaðu stafrænt tré á meðan þú lærir! Skemmtileg leið til að halda einbeitingu og draga úr símanotkun.
Sameinar verkefnalista og tímamæli. Lærðu í stuttum vinnulotum, taktu hlé og fylgstu með hversu miklum tíma þú eyðir í námið.
Safnaðu verðlaunum fyrir að læra og hugsaðu um stafræna kanínu. Skemmtileg leið til að hvetja þig áfram í náminu.
Einfaldur tímamælir sem skiptir námstímanum í vinnulotur og hlé. Hentar vel þegar þú þarft að koma þér af stað með verkefni.

Gervigreind getur hjálpað þér að skilja námsefni, fá útskýringar, búa til æfingaspurningar og finna hugmyndir. Notaðu hana til að læra og efla eigin þekkingu.
Gervigreind getur hjálpað þér að læra, en kemur ekki í stað eigin vinnu og gagnrýninnar hugsunar.
Settu inn glósur, skjöl eða námsefni og fáðu samantektir, útskýringar og hljóðumfjöllun byggða á efninu. Gagnlegt við prófundirbúning.

Fáðu flókin hugtök útskýrð á einfaldan hátt, búðu til æfingaspurningar og fáðu aðstoð skref fyrir skref. Þú getur líka notað námsstillingu til að vinna sjálfstætt að lausnum.

Fáðu aðstoð við ritgerðarskrif, tungumál, heimildaskráningu og verkefnaskil.

Búðu til glærukynningar, veggspjöld, myndrit og falleg verkefnaskil með tilbúnum sniðmátum.

Hjálpar þér að leiðrétta stafsetningu, málfræði og orðalag í enskum texta. Gagnlegt þegar þú skrifar ritgerðir og verkefni á ensku.
Safnaðu heimildum, skipuleggðu greinar og bækur og búðu til heimildaskrár fyrir ritgerðir og rannsóknarverkefni.

Gagnlegar íslenskar vefsíður sem hjálpa þér við stafsetningu, málnotkun, heimildaleit og stærðfræði.
Leitaðu að íslenskum orðum, merkingu þeirra, beygingum og réttri málnotkun. Hér eru margar íslenskar orðabækur aðgengilegar á einum stað.
Beygingarlýsing íslensks nútímamáls (BÍN)
Ertu óviss um hvernig orð beygist? Flettu upp íslenskum orðum og skoðaðu réttar beygingarmyndir.
Finndu reglur um íslenska stafsetningu, greinarmerki, stóran og lítinn staf og fleira sem nýtist við ritun.
Leitaðu að bókum, tímaritum og öðrum heimildum í íslenskum bókasöfnum. Gagnlegt þegar þú ert að vinna ritgerð eða heimildaverkefni.
Íslenskur villuleitari frá Árnastofnun
Snara er leitarvél fyrir íslenskar orðabækur sem geymir yfir 2 milljónir uppflettiorða í tugum orðabóka og uppflettirita. 12 af 43 orðabókum eru í opnum aðgangi.