- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Lýsing: Í áfanganum er fjallað um heiti, hlutverk og notkun algengustu verkfæra og tækja sem notuð eru á almennum tannlæknastofum. Nemendur kynnast uppbyggingu og virkni hand- og vinkilstykki ásamt því hvernig viðhaldi og umhirðu þessara tækja er best háttað til að tryggja örugga og skilvirka notkun. Verkfæri og tæki eru skoðuð í samhengi við mismunandi meðferðir inna tannlækninga og tengd þeim efnum sem notuð eru við framkvæmd þeirra svo sem við almennar tannfyllingar, kirurgiskar aðgerðir og gervitannagerð. Markmið áfangans er að nemendur öðlist þekkingu á notkun, hlutverki og meðferð þeirra verkfæra og efna sem eru nauðsynlegt í daglegu starfi á tannlæknastofu.
Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU
Námsmat: Frammistaða á klínik 50%, lokapróf 50%.
Einingar: 4