- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Lýsing: Áfanginn byggir á starfsþjálfun á aðgerðarstofu (klinik). Nemandi skal aðstoða við mismunandi verk sem fara fram við tannlæknastólinn. Þjálfað er í undirbúningi fyrir komu þjónustuþega, móttöku þjónustuþega, skráningu á tannkort og tryggingaeyðublöð, aðstoð við tannlæknastólinn ásamt þjálfun í frágangi og sótthreinsun áhalda og efna eftir meðferðir. Einnig er endurtekin þjálfun á aðgerðarstofu við mismunandi verk. Fjallað er um meðferð, tækni og notkun skanna í munni einstaklinga. Nauðsynleg þekking er þjálfuð til að notkun skanna virki sem best. Vistun og meðferð gagna og notkun hugbúnaðar auk persónuverndar umfjöllun fer fram. Verklegar æfingar og þverfagleg samvinna milli nemenda á tannlæknadeild. Auk þess er fjallað um extra oral myndatöku, ljósmyndun æfð og verkefni leyst.
Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU
Námsmat: Símat á frammistöðu ásamt ferilbók, farið yfir fyrri hluta ferilbókar í október fyrir viðtöl. Einstaklingsviðtöl tekin í október þar sem farið er yfir frammistöðu, kosti og galla. Sjá blað um leiðsagnarviðtöl. Seinni hluta ferilbókar skilað að loknum síðasta kennsludegi annarinnar. Auk þess er skilað skanna verkefni og svokölluðum status af ljósmyndum af samnemanda (7 myndir).
Einingar: 12