AVTA3SÞ12 - Aðstoð við tannlækningar 2

Undanfari : AVTA2AS12
Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Lýsing: Áfanginn er framhaldsáfangi sem byggir á starfsþjálfun á aðgerðarstofu (klinik). Nemandi tekur virkan þátt í mismunandi verkum sem fara fram við tannlæknastólinn. Áhersla er lögð á aðstoð við mismunandi aðgerðir ásamt sérhæfðum aðgerðum við barnatannlækningar, skurðlækningar, tannréttingar og tanngervalækningar. Ásamt þjálfun í móttöku og umsýslu tannkorta. Endurtekin þjálfun á aðgerðarstofu við mismunandi verk. Auk þess er kennd skerping verkfæra.

Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU

Námsmat: Símat á frammistöðu á klinik ásamt ferilbók, fyrri hluta ferilbókar skilað fyrir viðtöl. Viðtöl fara fram seinni hluta annar. Sjá blað um leiðsagnarviðtöl. Ferilbók er skilað að loknum síðasta kennsludegi. Einnig fer fram verklegt og bóklegt próf í skerpingum verkfæra auk verkefnis um munn- og kjálkaskurðlækningar.

Einingar: 12