DANS2RM05 - Danska 1, málnotkun og lesskilningur

Undanfari : Dönskueinkunn A eða B á grunnskólaprófi
Í boði : Haust, Vor, Sumar
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Megináhersla er lögð á lestur (vandlegan lestur erfiðra texta og hraðlestur skáldsagna) og hlustun þannig að nemendur séu færir um að skilja allt venjulegt talað og ritað mál almenns eðlis. Málfærni og ritfærni er þjálfuð í tengslum við viðfangsefnið hverju sinni. Nemendur er þjálfaðir í að nota algeng orð og orðasambönd í ræðu og riti og að beita mismunandi stilbrögðum við ritun texta.

Kennslugögn

„Danskur málfræðilykill“ eftir Hrefnu Arnalds, Mál og menning, Reykjavík 1996.
Í áfanganum verða lesnar smásögur sem kennari útvegar og gerir aðgengilegar nemendum á Moodle. Annað efni, svo sem vefslóðir, textar og verkefni, verður einnig aðgengilegt á kennsluvefnum Moodle.

Námsmat: Lokapróf með lágmarkseinkunn 4.5

Lokapróf 50%
Verkefni og próf á önninni 50%