ENSK2LG05 - Lestur góðra bóka

Undanfari : Að nemandi hafi lokið 5 einingum á 2. þrepi
Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfanginn er ætlaður þeim nemendum sem vilja lesa sér til ánægju og þroska. Tilgangurinn er að kynnast fjölbreyttu úrvali þekktra enskra bóka. Markmið áfangans er að æfa nemendur í að gera skipulega grein fyrir efni bóka sem þeir hafa valið sér af bókalista, tjá skoðanir og viðhorf auk greiningar á efni viðkomandi bókar, bæði munnlega og í ritun.