- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Lýsing: Í áfanganum er fjallað um þau atriði sem gera fjögurra handa tannlækningar sem bestar og skilvirkastar. Fjallað er um líkamsbeitingu, verkfæraskiptingu og vinnuferli, bæði bóklega og verklega. Áhersla er lögð á mikilvægi skipulags, samvinnu og skýrra skilaboða. Í framhaldi af því eru gerðar fjögurra handa æfingar við gervihaus. Lögð er áhersla á vinnu við almennar tannfyllingar.
Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU
Námsmat: Símat á frammistöðu á klinik ásamt ferilbók og viðtölum sem fara fram í október, ferilbók er skilað í lok annar. Skriflegt próf úr bóklegum hluta er haldið í seinni lotuviku eftir síðasta fyrirlestur í fjögurra handa tannlækningum í október, verklegt og munnlegt próf, sem er þverfaglegt, með prófdómara í lok seinni hluta áfanga á vorönn
Einingar: 4