- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Lýsing: Í áfanganum er lögð áhersla á þjálfun hvers nemanda við fjögurra handa vinnu. Unnið er við gervihöfuð og áhersla lögð á faglegt vinnuferli. Lögð er áhersla á vinnu við tannfyllingar, tannhreinsanir og flúorlakkanir ásamt hverskonar meðferð í munni. Nemendur fá þjálfun í raunhæfu umhverfi með nemum í tannlækningum sem og á tannlæknastofum sem eru heimsóttar.
Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU
Námsmat: Símat á frammistöðu á klinik ásamt ferilbók og viðtölum sem fara fram um miðja önn. Verklegt og munnlegt próf, sem er þverfaglegt, með prófdómara í lok áfanga á vorönn.
Einingar: 5