- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Lýsing: Forvarnir og samskipti er áfangi sem er kenndur bæði á haust og vorönn. Vinnan byggir á samstarfi og þverfaglegri samvinnu. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð. Mikilvægt er að byrja að skrá hjá sér strax nákvæmlega öll verkefni sem falla undir þennan áfanga. Fjallað erum góða munnhirðu mismunandi hópa, nálgun fræðsluefnis og framsetningu, nemendur þjálfaðir í að velja efni, setja upp og fræða aðra um það. Einnig er fjallað um áhættusjúklinga í tengslum við tannheilbrigði. Unnið er þverfagleg verkefni með nemendum á sjúkraliðabrautum, svokölluð jafningjafræðsla. Fjallað er um samskipti innan mismunandi þjóðfélagshópa, samskipti og þjónusta æfð ásamt hópavinnu/teymisvinnu. Samvinna er bæði við öldrunarstofnun um fræðslu og aðstoð við munnhirðu þjónustuþega ásamt samvinnu við aðra framhaldsskóla um jafningjafræðslu um munn- og tannhirðu.
Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU
Námsmat: Undirbúningur, skipulag, framkvæmd verkefna metin – skila mjög nákvæmri ferilbók/dagbók 30%. Þverfaglegt verkefni með sjúkraliðum 30%, samvinnuverkefni um forvarnir með öldrunarstofnun 30%, árvekni, kennaramat, sjálfsmat 10%.
Einingar: 5