- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Lýsing: Í seinni hluta áfangans eru nemendur þjálfaðir í að fræða aðra og eiga samskipti við mismunandi þjóðfélagshópa áfram. Sjálfstæði í vinnubrögðum og skráning ferilbókar eru yfirfarin. Nemendur vinna þverfaglegt verkefni með sérdeild Fjölbrautaskólans við Ármúla þar sem fötluðum einstaklingum og einstaklingum með sérþarfir er boðin fræðsla ásamt heimsókn á aðgerðarstofu til að fá tennur pússaðar. Þverfaglegt verkefni er einnig unnið með heilsunuddnemendum Fjölbrautaskólans við Ármúla þar sem fram fer fræðsla, pússun tanna og samskipti. Samvinna er við forskóla þar sem forskólabörnum er boðið í heimsókn bæði í FÁ og verknám tanntækna sem fram fer við tannlæknadeild. Samvinna um kennslu í munnhirðu fyrir starfsfólk á sam/sérbýlum. Mikil þjálfun í umgengni við allskonar hópa ásamt því að vinna í hóp.
Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU
Námsmat: Undirbúningur, skipulag, framkvæmd verkefna metin – skila ferilbók. Skipulag og framkvæmd þverfaglegs verkefnis sem fjallar um fræðslu fyrir heilsunuddnema 20%, samvinnuverkefni um forvarnir með sam/ og sérbýlum 20%, fræðsla og móttaka sérdeildar FÁ 20%, skipulag og framkvæmd heimsóknar fyrir forskólabörn 20%, árvekni/kennaramat 10%, sjálfsmat 10%.
Einingar: 5