ÍSLE2HM05 - Íslenska - heimildir og málnotkun

Undanfari : Íslenskueinkunn A eða B á grunnskólaprófi (eða ÍSLE1GR05)
Í boði : Haust
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Í áfanganum kynnast nemendur undirstöðuþáttum í meðferð heimilda og gerð heimildaritgerða og skrifa stutta heimildaritgerð. Þeir þjálfast í meðferð ritaðs- og talaðs máls, vinna með orðtök, málshætti, algengan og sértækan orðaforða og læra að forðast helstu málvillur. Nemendur kynnast ritun fundargerða og lesa íslenska skáldsögu (eða smásögur) og tjá sig um hana munnlega og/eða skriflega. Nemendur kynnast einnig helstu atriðum í góðri framsögn.

Námsgögn:

Gísli Skúlason. Hagnýt skrif. Bókin er aðgengileg sem vefbók. Nemendur kaupa sér áskrift á vefsíðunni https://vefbok.is/hagnyt-skrif/.

Önnur námsgögn hjá kennara í Moodle

Námsmat:

Verkefni og próf á önn: 50%

Lokapróf: 50% (Lokapróf með lágmarkseinkunn 4.5)