ÍSLE2LG05 - Lestur góðra bóka 1

Undanfari : ÍSLE1GR05
Í boði : Alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfanginn er ætlaður þeim nemendum sem vilja lesa sér til ánægju og þroska. Tilgangurinn er að kynnast fjölbreyttu úrvali íslenskra bóka. Markmið áfangans er að æfa nemendur í að gera skipulega grein fyrir efni bóka sem þeir hafa valið sér af bókalista, tjá skoðanir og viðhorf auk greiningar á efni viðkomandi bókar, bæði munnlega og í ritun.