LAUS2LR05 - Lausasölulyf - í boði næst haust '26

Í boði : Haust
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Fjallað er um öll lausasölulyf, flokka þeirra, sérheiti og samheiti, áhrif og verkun, notkun, auk helstu auka- og milliverkanir þeirra. Farið er yfir takmarkanir á sölu lyfja í lausasölu ásamt því að þjálfa nemendur í að veita faglegar upplýsingar og ráðgjöf um lausasölulyf.

Kennslugögn: Lausasölulyf, 12.útg. 2023, eftir Guðrúnu Kjartansdóttur.

Námsmat: Lokapróf með lágmarkseinkunn 4.5

Verkefni (30%) og lokapróf (70%).