- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Í áfanganum læra nemendur um forsendur samtímalista. Þeir kynnast helstu hræringum í tónlist, sviðslistum, myndlist, hönnun og byggingarlist allt frá lokum 20. aldar til dagsins í dag. Þeir rannsaka listgreinar samtímans í samhengi við meginþætti samfélagsgerðarinnar: stjórnarfar, fjölmiðlun, lífsgæði, hagsmuni einstakra hópa, tísku og hefðir, hugmyndafræði og heimsmynd. Innlögn í áfanganum verður í fyrirlestrar formi en auk þess er mikil áhersla lögð á sjálfstæðar rannsóknir nemenda á þeim hugmyndum sem uppi eru í listsköpun og umræður um stöðu myndlistarinnar, hönnunar, tónlistar og sviðslistanna í sögulegu ljósi. Námið byggist á virkri þátttöku og skiptist í nokkur stór verkefni og hluti námsins felst í að upplifa og taka þátt í listviðburðum og vettvangsferðum þeim tengdum. Efnið verður tekið fyrir á fjölbreyttan hátt og farið verður í þætti sem snúa að fagurfræði og heimspeki, túlkun og tjáningu.