MASK2SV07 - Starfs- og vinnustaðakynning- nýsköpunar- og listabrautar

Undanfari : Enginn
Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í þessum áfanga eru nemendur á skipulagðan hátt látnir kynnast starfsumhverfi og atvinnulífi skapandi greina s.s. hönnun, margmiðlun, kvikmyndagerð, sjónvarpi, fjölmiðlum og menningastofnunum, ásamt iðngreinum, ferða- og þjónustugreinum þar sem nýsköpun og hönnun á sér stað. Markmiðið er nemendur geti gert sér grein fyrir starfsumhverfi þessara greina og möguleikum til starfa og framhaldsnáms á þessu sviði að loknu námi á brautinni.