MYNL3VL05 - Myndbandlist

Undanfari : Áfangar á 2. þrepi á listabraut
Í boði : Haustönn 2027
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfanginn er byggður upp í þematískum lotum þar sem nemendur gera eigin tilraunir með mynd, hljóð, tíma og hreyfingu á skapandi hátt. Samhliða verður skoðað hvernig tækni og samfélag hafa mótað þróun vídeólistar og opnað nýjar leiðir til listrænnar tjáningar.

Nemandi mun öðlast þekkingu og skilning á:

-Myndmáli og uppbyggingu myndbands.
-Upptökutækni, klippingu og hljóðvinnslu.
-Samspili myndar og hljóðs í sjónrænni frásögn

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Segja sögu með myndum, hljóði og klippingu.
-Fanga stemningu, hreyfingu og augnablik.
-Þróa hugmynd og vinna hana í stutt myndbandsverk.
Hæfniviðmið nemandi skal geta:

-Unnið sjálfstætt og markvisst að skapandi verkefnum.
-Tekið þátt í samtali um eigið verk
-Skipulagt vinnuferli og skilað verkefnum á tilskildum tíma.