RTGF2GR05 - Röntgenfræði 1

Undanfari : Bóklegt nám tanntækna
Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Lýsing: Í áfanganum er fjallað almennt um röntgenfræði, þar sem lögð er áhersla á öryggisatriði. Kenndar eru mismunandi aðferðir við röntgenmyndatökur tanna. Kennt er á mismunandi tæki til röntgenmyndatöku bæði digital myndatöku og myndatöku á filmur. Farið er yfir ferlið við framköllun röntgenmynda, frágang og meðhöndlun spilliefna. Fjallað er um rétta tækni við röntgenmyndatöku með tilliti til lýsingar og gæða. Nemendur fá þjálfun í því að taka röntgenmyndir með mismunandi tækni á gervihöfði. Kennt er hvernig raða á röntgenmyndum, geyma og senda. Farið er yfir samsíða tækni og helmingahornatækni, hvernig periapical- og bitewing myndir eiga að vera.

Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU

Námsmat: Ritgerð 30%, lokapróf 50% verkefni (uppröðun á status, myndataka á dúkku ofl) 20%.

Einingar: 5