- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Nemendaþjónusta
- Almenn þjónusta
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
- Lykilorð
Lýsing: Í áfanganum er þjálfun í röntgenmyndatöku, uppröðun og frágangi á röntgenmyndum við raunhæfar aðstæður. Farið er yfir myndatökur í CBCT tæki, profíl myndir og orthopantomogram myndir. Nemendur fá þjálfun í að taka röntgenmyndir hvor af öðrum ásamt af þjónustuþegum þegar tækifæri gefast. Kennd extra oral röntgenmyndataka. Farið er í umsjón með birgðahaldi.
Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag heita: Tandklinikassistent, Hovedforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni https://praxis.dk/soeg/tandklinikassistent þess ber að geta að þessar bækur eru notaðar í öllu verknáminu. Lærebog for klinikassistenter bog 1 og 2, bláar möppur, má einnig nota. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfinu INNU
Námsmat: Skila skal röntgenstatus af dúkkuhöfði með 16 fullkomnum myndum og umsögn um hverja þeirra. Skila skal að lágmarki 8 mismunandi röntgenmyndum af einstakling og umsögn með hverri þeirra (velkomið að skila fleirum).
Skila skal ortopan mynd með umsögn, profilmynd með umsögn og CBCT mynd með umsögn.
Einingar: 4